09. stjórnarfundur
6.september 2024
Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (12/2024).
Níundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 6.09.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5.
Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Ólafur Bachman (ÓB) meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn. EJ ritar fundargerð í fjarveru Guðrúnar Þórönnu (GÞ) og MJM fer yfir.
- Fundur settur 10:30
Fjórir fulltrúar Kvenfélags Selfoss mættu á fundinn. Formaður, gjaldkeri og tveir fulltrúar kaffiveitinga. Farið var yfir áframhaldandi samstarf, fimmtudagskaffi. MJM lýsti yfir ánægju stjórnar með samstarfið og hið sama gerðu Sigríður og Þóra Valdís. Samstarfið hefur gengið mjög vel. Ákveðið að Kvenfélagið sæi áfram um kaffiveitingar á opnu húsi á fimmtudögum. ÓS myndi upplýsa þær um viðburði mánuð fram í tímann til að auðvelda þeim að áætla fjölda. Verð yrði óbreytt eða 1.500 kr. fyrir kaffi og með því og 200 kr fyrir molasopann. Rætt var um að það bráðvantaði meira pláss í eldhúsinu. Kvenfélagskonur töldu að yrði til mikilla bóta að fá hillur yfir vaskinum.
Á kynningarfundinum mun Kvenfélagið afhenda gjafabréf vegna hjartastuðtækis.
Litlu jólin verða 12. des.
- Fundargerð síðasta fundar lögð fram, hún var samþykkt samhljóða.
- Drög að dagskrá viðburðarstjórnar. Margar hugmyndir komnar á blað, nýr nefndarmaður Sigrún Óskarsdóttir og kemur hún sterkt inn. Nefndarmenn eru 6, veitir ekki af þessum fjölda þar sem nefndarmenn eru ekki allir á staðnum hverju sinni. MJM hvetur stjórnarmenn til að mæta á viðburði og aðstoða nefndina eftir þörfum.
Hugmynd um púttvöll rædd.
Bingó. Fyrirspurn frá ÓS hvernig gengi með kaupin á bingókerfi. EJ sagði frá að FEBSEL væri á biðlista og ætti að fá tölvupóst um leið og kerfið kæmi í Spilavini – vefverslun. Tengill er Þorri hjá spilavinum og mun EJ hafa samband við hann aftur til að vera viss um að tengillinn virki og skilaboð muni berast við komu bingókerfisins.
- Drög að kynningarfundi. MJM búinn að setja auglýsingu á skjá í Grænumörk um kynningarfundinn. Kaffi hefst 14.45 í boði félagsins. Kynning hefst svo um kl 3. Farið yfir stundaskrána. MJM er búinn að úbúa Power Point skjal þar um. Starfsemin er þegar hafin sums staðar. VB mun láta prenta um 200 eintök af dagskránni sem liggur frammi á fundinum. Verið er að vinna við stundaskrá haust og vor annar og þarf hún að vera endanlega fyrir kynningarfundinn. EJ hefur verið í sambandi við Bylgju hjá Árborg vegna Zulay Dansmeðferðaraðila og hefur tímasetningin kl. 2 á mánudögum og 2 á föstudögum verið nokkuð njörvuð niður. Rætt um að halda kynningarfund n.k. mánudag. Bylgja myndi þá mæta og einn fulltrúi úr stjórn, ÓI sagðist geta mætt. Yoga í vatni hefur verið auglýst á FB síðu félagsins. Skv Helgu kennara hafa fjórir skráð sig en lágmarkið er 10 manns. Ætlunin var að námskeiðið hæfist n.k. fimmtudag. Þurfum að endurvekja auglýsinguna og sjá hvort ekki koma fleiri.
MJM að semja grein í Dagskrána um kynningarfundinn.
- Öldungaráðstefna LEB. Fundur með öldungarráði, öldungarráðstefna verður 17. október n.k. að Stórhöfða 35. Landssambandið hefur flutt starfsemi sína úr Ármúlanum í Stórhöðfðan, bæði er leigan lægri og bílastæði miklu fleiri. Góðir salir til afnota. Sameiginlegur fundur með LEB og Sveitarfélögunum.
- september fundur LEB með kjararráði. Kjaramálin er mjög brýnt að ræða og eldri borgarar ættu að fjölmenna á framboðsbundi.
Landsfundur LEB áætlaður um miðjan maí á Akureyri.
- Efni frá síðasta fundi. Frístundamessa 31.08.24 í Selfosshöllinni. Tókst mjög vel, renningur af fólki. Hörpukórinn kynnti sína starfsemi og Trausti líkamsræktina á þriðjudögum og fimmtudögum frá 9.30 til 11.30. MJM ræddi við Gissur varðandi kaffi í Tíbrá eftir líkamsræktina og var hann jákvæður með það. Rætt um að kannski væri hægt að fá kaffið inn í höllina. MJM ræðir frekar við Gissur.
GÞ búin að tala við Einar í glerinu. Ekki komið endanlega frá honum hvort hann er tilbúinn að taka það að sér. GÞ mun ræða aftur við hann.
Laugardagssöngur sem var verður að öllum líkindum ekki með sama sniði. Talað er um t.d. einu sinni í viku einn mánuð á haustönn og 1 mánuð á vorönn. GÞ mun athuga með það.
- Önnur mál
- EJ dreifði 8 mánaða uppgjöri, upplýsti um rekstrartekjur og rekstrargjöld ásamt eignastöðu félagsins. Upplýsti um fjölda félagsmanna sem er 970, 60 hafa gengið í félagið á árinu og 88 hafa verið skráðir út, annaðhvort látnir, eða hafa sagt sig úr félaginu.
- Ekki reynist unnt að hafa jólahlaðborðið 5. des eins og fyrirhugað var. Ákveðið að það verði 4. des. Og litlu jól 12. des. Kvenfélagið verður þá með jólalegt í M1 og heimabakaðar piparkökur.
- ÓS sagði frá skjávarpa sem Páll hafi pantað og kostaði um 14 þús. Ætlar að athuga að fá hann til prufu þegar hann kemur til landsins.
- Formannafund félaga eldri borgara á Suðurlandi verður 1. október á Hótel Kötlu við Vík í Mýrdal kl. 12.00.
- Fundi slitið 12.00
Næsti fundur fimmtudaginn 19. september kl. 13.00 í framhaldinu er svo kynningarfundurinn. Formaður verður fjarverandi 20. til 30. september.
________________________________ ________________________________
Elín Jónsdóttir Magnús J. Magnússon formaður
Eldri stjórnarfundir
05. stjórnarfundur
05. stjórnarfundur 10.maí 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (8/2024).fimmti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 10.05.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...
04. stjórnarfundur
04. stjórnarfundur 19.apríl 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (7/2024).Fjórði fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 19.04.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...
03. stjórnarfundur
03. stjórnarfundur 5.apríl 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (6/2024).Þriðji fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 05.04.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari,...
02. stjórnarfundur
02. stjórnarfundur 22.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (5/2024).Annar fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 22.03.2024, kl. 9:00í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
01. stjórnarfundur
01. stjórnarfundur 1.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (4/2024).Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 01.03.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ)...
Aðalfundur Félags eldri borgara Selfossi
Aðalfundur Félags eldri borgara Selfossi 22.febrúar 2024 FUNDARGERÐ Fundarsetning Formaður félagsins setti fund og bauð alla velkomna. Hann lagði til að Jóna S. Sigurbjartsdóttir yrði fundarstjóri og Örlygur Karlsson og Margrét Jónsdóttir yrðu ritarar. Var það...
Fungargerð aðalfundar Febsel 2023
Fundargerð aðalfundar FEBSEL 2023 22.febrúar 2023 Fundargerð aðalfundar FEBSEL 2023. Aðalfundur Félags eldriborgara Selfossi, haldinn 23. febrúar 2023 kl. 14:00 í félagsmiðstöðinni Mörk, Selfossi. Fundur settur. Þorgrímur Óli Sigurðsson formaður setti fundinn og...
Ársskýrsla stjórnar FEB á Selfossi flutt á aðalfundi 2023
Ársskýrsla Félags eldri borgara Selfossi fyrir árið 2022. Eftir tvo daga verður liðið ár frá því að öllum takmörkunum vegna Covid 19 var aflétt. Við getum fagnað því að síðan þá hefur starf félagsins nánast gengið hnökralaust. Samt verður það ekki sagt að...