Allir hafa gott af því að stunda reglulega líkamsrækt, ekki síst eldri borgarar. Finna skal hreyfingu sem hentar hverjum fyrir sig. Best er að stunda hreifinguna í hópi með öðrum til þess að fá einnig félagsskap.
Nýtum nýju jafnvægis og hreystistöðina sem er við Grænumörk. Góð leið til þess að halda sér liðugum og í formi. Leiðbeiningar um notkun má finna á hlekknum hér fyrir neðan.