03. stjórnarfundur
5.apríl 2024
Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (6/2024).
Þriðji fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 05.04.2024 í Uppsölum
í Grænumörk 5.
Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn. Ólafía Ingólfsdóttir og Elín Jónsdóttir boðuðu forföll. Ólafur Bachman var fjarverandi
- Fundur var settur 10:30 af formanni.
- Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt.
- Viðtal Karenar Margrétar meistaranema. MJM bauð meistaranemann velkominn og hún þakkaði fyrir að fá að koma og kynnast starfi okkar á Selfossi. Hún er meistaranemi í opinberri stjórnsýslu og fjallar meistaraprófsritgerðin hennar um aðgerðaáætlunina Gott að eldast sem er samstarfsverkefni félags- og vinnumálaráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins. Karen Margét fékk upplýsingar um stöðuna hjá Félagi eldri borgara Selfossi og taldi hún starf félagsins gott miðað við það sem hún hafði fengið upplýsingar um í öðrum landshlutum. Síðastliðið haust var ákveðið að Árborg yrði tilraunaþátttakandi í verkefninu Gott að eldast og er verið að vinna að því að undirbúa þá framkvæmd. Lögð hefur verið áhersla á að nýta verkefnið inn á is. Er meðal annars verið að vinna að því að samþætta þjónustu á milli ríkis og heilbrigðisþjónustu.
- Öldungaráðið í Opnu Húsi 04.04.24. Stjórnin var sammála um að það hefði verið góð umræða í opna húsinu. Ráðið fékk þó nokkrar spurningar um mat, þrif og fleira, aðgengi yfir Austurveginn, þakkir fyrir heilsueflinguna. Ákveðið hefur verið að19. apríl komi Bragi Bjarnason formaður ráðsins og Sigþrúður Birta starfsmaður ráðsins á fund með stjórn félagins.
- Námskeið næsta vetur. Ræða þarf við námskeiðshaldara um næsta vetur, hvað getur haldið áfram, einnig gætu ný námskeið bæst við. Einnig þarf að kanna hverjir vilja sýna verk sín af námskeiðum vetrarins á Vor í Árborg.
- Vor í Árborg verður 25. og 27. apríl. Félagið þarf að koma að sýningunum. Athuga þarf með einhver skemmtiatriði, Hörpukórinn, mögulega meiri tónlist, ath. hjá KS hvort þær gætu verið með vöfflukaffi báða dagana. GÞ mun kanna með Hörpukórinn og kvenfélagið.
- Önnur mál.
- a) Félag eldri borgara frá Ísafirði kemur – 7. júní í heimsókn á Suðurland. Mótttaka verður skipulögð þegar nær dregur.
- b) Stjórn mun undirbúa heimsókn forsvarsmanna öldungaráðs á næsta fund stjórnarinnar, Braga Bjarnasonar og Sigrúðar Birtu Jónsdóttur. M.a. má nefna að mikilvægt sé að fá húsvörð í Grænu Mörk 5.
Næsti stjórnarfundur 19.04.24 kl. 9:00 verður boðaður með dagskrá
Fundi slitið. 11:30
________________________________ ________________________________
Guðrún Þóranna Jónsdóttir Magnús J. Magnússon
ritari formaður
Eldri stjórnarfundir
06. stjórnarfundur
06. stjórnarfundur 24.maí 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (9/2024).sjötti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 10:30 föstudaginn 24.05. 2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
05. stjórnarfundur
05. stjórnarfundur 10.maí 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (8/2024).fimmti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 10.05.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...
04. stjórnarfundur
04. stjórnarfundur 19.apríl 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (7/2024).Fjórði fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 19.04.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...
02. stjórnarfundur
02. stjórnarfundur 22.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (5/2024).Annar fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 22.03.2024, kl. 9:00í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
01. stjórnarfundur
01. stjórnarfundur 1.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (4/2024).Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 01.03.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ)...
Aðalfundur Félags eldri borgara Selfossi
Aðalfundur Félags eldri borgara Selfossi 22.febrúar 2024 FUNDARGERÐ Fundarsetning Formaður félagsins setti fund og bauð alla velkomna. Hann lagði til að Jóna S. Sigurbjartsdóttir yrði fundarstjóri og Örlygur Karlsson og Margrét Jónsdóttir yrðu ritarar. Var það...
Fungargerð aðalfundar Febsel 2023
Fundargerð aðalfundar FEBSEL 2023 22.febrúar 2023 Fundargerð aðalfundar FEBSEL 2023. Aðalfundur Félags eldriborgara Selfossi, haldinn 23. febrúar 2023 kl. 14:00 í félagsmiðstöðinni Mörk, Selfossi. Fundur settur. Þorgrímur Óli Sigurðsson formaður setti fundinn og...
Ársskýrsla stjórnar FEB á Selfossi flutt á aðalfundi 2023
Ársskýrsla Félags eldri borgara Selfossi fyrir árið 2022. Eftir tvo daga verður liðið ár frá því að öllum takmörkunum vegna Covid 19 var aflétt. Við getum fagnað því að síðan þá hefur starf félagsins nánast gengið hnökralaust. Samt verður það ekki sagt að...