Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (10/2024).
Sjöundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 08.08.2024 í Uppsölum
í Grænumörk 5.
Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Bachman (ÓB) meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn.
- Fundarsetning Formaður setti fund kl. 10:25.
- Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt samhljóða.
- Kynningarfundurinn og vetrardagskráin Kynningarfundur FebSel verður 19.09 og mun byrja kl. 14:00. Kvenfélagið verður beðið að sjá um kaffið og komin hefð fyrir að það sé í boði FebSel. Fundur var sl. vor með leiðbeinendum námskeiða og hópa. Þar kom fram að flestir vilja áfram vera á sama stað og tíma. Postulínshópurinn mun trúlega flytja inn á austurganginn þar sem glerið hefur verið. Athugað verður með sundjóga sem rætt var sl. vor. – Elín mun hafa samband við Magnús í sundlauginni til að kanna hvort hægt sé að fá tvo tíma á viku. Haft hefur verið samband við EJ um hvort áhugi sé fyrir dansi, þetta er líkt zumba, en frjáls hreyfing, Zualy er danskennarinn og tengiráðgjafi er Bylgja. EJ mun kanna málið. Fyrsta opna húsið verður 26.09 kl. 14:45 , þar mun viðburðastjórn kynna drög að vetrardagskrá.
- Fastir viðburðir á starfsárinu: Árshátíð verður 7.11, kl. 18 á Hótel Selfoss. Aðalfundur verður 20. febrúar 2025. Listasýning verður á Vor í Árborg og uppskeruhátíð í vor. Rætt um stöðuna á Karlar í skúrnum – verður í Nytjamarkaðnum í vesturenda hússins. ÓS mun kanna stöðu hjá forsvarsmönnum Nytjamarkaðarins um framkvæmd verkefnisins og ef einhverjar fréttir eru þá að segja frá því á kynningarfundinum.
- Fundartímar stjórnar – MJM mun senda stjórninni tímasetta stjórnarfundi. Síðasti stjórnarfundur ársins verður 14. febrúar 2025.
- Önnur mál
- Jarðarför Hjartar Þórarinssonar verður á morgun, 9. ágúst. Sigríður Guðmundsdóttir fyrrverandi formaður FebSel mun senda minningargrein fyrir hönd FebSel, kveðja verður lesin frá félaginu í útförinni og krans sendur frá félaginu og Hörpukórnum.
- Ferðanefnd FebSel boðar til samveru í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 20. ágúst sem kallast „Einu sinni á ágústkvöldi“
- Móttaka á hjartastuðtæki – Stefnt að því að hafa hana á kynningarfundi í sept. Þá myndi Kvenfélag Selfoss afhenda FebSel hjartastuðtækið formlega.
- Félagsgjöld, spurning hvort ástæða er til að hækka þau. Verður ákveðið síðar. Nokkuð margir hafa ekki greitt og mun EJ kanna það frekar m.a. með því að hringja í viðkomandi.Heimasíða –
- MJM bað stjórnarmenn að skoða heimasíður hjá öðrum eldri borgara félögum fyrir næsta stjórnarfund.
- FebSel hefur árlega greitt styrk til Hörpukórsins. Síðan 2023 hefur upphæðin verið 300.000 kr.
- Ísfirðingar komu í heimsókn sl. vor, þeir sendu kveðju með þakklæti fyrir góðar móttökur.
- Eldri borgarar í Hornfirði hafa óskað eftir að vera með í félagi við Sunnlendinga. MJM mun boða þá á næsta formannafund Sunnlendinga. Þingmenn Sunnlendinga hafa hug á að mæta aftur á fund með forsvarsmönnum Eldri borgara á Suðurlandi, mögulega næsta fund nú á haustdögum.
Fundi slitið kl. 11.23
Næsti fundur 23.08 og verður boðaður með dagskrá.
________________________________ ________________________________
Guðrún Þóranna Jónsdóttir Magnús J. Magnússon
ritari formaður