20. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (3/2025).
Tuttugasti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 14.02.2025 í Uppsölum í Grænumörk 5.
Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Bachman (ÓB) meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn. Ólafía Ingólfsdóttir varaformaður boðaði forföll.
- Formaður setti fund 10:30 og bauð fundarmenn velkomna.
- Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt.
- Gestur fundar. Sigþrúður Birta Jónsdóttir deildarstjóri velferðarþjónustu kom með samning milli sveitarfélagsins Árborgar og FebSel sem aðilar frá stjórn og fulltrúar frá Árborg hafa endurskoðað. MJM las upp samninginn og leist fundarmönnum margt gott í honum. Eftir umræður varðandi framlag sveitarfélagsins til FebSel var ákveðið að fresta undirskrift samningsins til vors.
- Aðalfundur FebSel 20.02.25. Ákveðið að stjórn mæti kl. 11:00 til að undirbúa salinn í Mörk 2 og síðan munu fundarstjóri og ritarar mæta á fund með stjórn kl. 13:00. MJM mun leggja fram ályktanir. Skýrslur nefnda verða sendar til formanns. GÞ mun hafa samband við Ingibjörgu í ferðanefnd, Rúnar í Hörpukór, Svölu í Öndvegisbókmenntum og Maríu Busk í leikhúsnefnd og biðja þau að gefa skýrslu um sínar nefndir. Kaffi og meðlæti verður í boði félagsins. Rætt um að bera fram kökur á borðin fyrir fundarmenn, stjórn er tilbúin að leggja kvenfélaginu lið. GÞ mun tala við kvenfélagskonur varðandi það. MJM mun hafa samband við formann kjörnefndar sem mun leggja fram tillögur nefndarinnar.
- Önnur mál.
- a) Velt upp hugmynd um hvort félagið ætti að styrkja námskeið FebSel til að auðvelda fólki að sækja námskeiðin. Verður skoðað.
- b) Á Hvolsvelli á að dansa 14. mars. MJM mun hafa samband við félög eldri borgara úr lágsveitum og kanna hvort áhugi sé að sameinast um sætaferð á ballið.
- c) EJ hefur undirritað rafrænt samning við Abler.
- d) Landsfundur LEB 29. Apríl, kl. 10:15 til 16:30. Forseti Íslands mun ávarpa fundinn. Lagðar verða fram lagabreytingar. Stjórn þarf umboð aðalfundar til að velja fulltrúa til aðalfund, MJM mun kalla eftir því. FebSel má senda 4 fulltrúa.
- e) ÓS mun verða fjarri frá 25. febr. til 13. mars.
Fundi slitið 11:40
Næsti fundur 20.02.25 kl. 13.00 í Uppsölum
________________________________ ________________________________
Guðrún Þóranna Jónsdóttir Magnús J. Magnússon.
________________________________ ________________________________
Guðrún Þóranna Jónsdóttir Magnús J. Magnússon
ritari formað
Eldri stjórnarfundir
19. stjórnarfundur
19. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (3/2025).Nítjándi fundur stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 31.01.2025 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...
18. stjórnarfundur
18. stjórnarfundur stjórnarfundur föstudaginn 17.01.25 kl. 09:00 í Uppsölum Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (2/2025).Átjándi fundur stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 17.01.2025 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM)...
17. stjórnarfundur
17. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (1/2025).Sautjándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 03.01 2025 í Uppsölum í Grænumörk 5.Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...
16. stjórnarfundur
16. STJÓRNARFUNDUR Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (19/2024).Sextándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 13.12.2024 í Fosstúni 7. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ)...
15. stjórnarfundur
15. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (18/2024).Fimmtándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 29.11.2024 kl. 10:30 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna...
14. stjórnarfundur
13. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (17/2024).Fjórtándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 15.11.2024 kl. 10:30 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...
13. stjórnarfundur
13. stjórnarfundur 1.nóvember 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (16/2024). Þrettándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 01.11.2024 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...
12. stjórnarfundur
12. stjórnarfundur 18.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (15/2024).Tólfti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 10:30 föstudaginn 18.10.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
11. stjórnarfundur
11. stjórnarfundur 4.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (14/2024). Ellefti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.0.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
10. stjórnarfundur
10. stjórnarfundur 19.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (13/2024).Tíundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.09.2024 í Uppsölum í Grænumörk Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...