893 2136

febsel@febsel.is

Smella hér fyrir Facebook síðu Febsel →

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (11)/2026)

6. stjórnarfundur Febsel föstudaginn 17.04.26 haldin í S1 í Grænumörk
Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir (JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritari, Margrét Jónsdóttir (MJ) gjaldkeri, Valdimar Bragason (VB) meðstjórnandi, Gils Einarsson (GE) og María Hauksdóttir (MH)
Fundur með nefndum kl. 09.30 – 10.30 í S1
Félagsvist / Bridge / Kínaskák, Fornsögur, Bókmenntir, Hörpukórinn, Leikhúsnefnd

Mættir: Hannes Stefánsson(MH), Guðrún Þóranna Jónsdóttir(GÞJ) Nanna Þorláksdóttir(NÞ), María Busk(MB), Ástríður Guðný Daníelsdóttir(ÁGD) og Hjördís Þorsteinsdóttir(HÞ).

HÞ og ÁGD sögðu frá spilaklúbbunum, Kínaskák og Félagsvist, þær sögðu að það væri góð þátttaka í báðum klúbbum og það hefði gengið vel að spila einnig yfir sumartímann. ÁGD sagði að það væri vont að vera of lengi við stjórn og mætti skipta út oftar. Spurt var hvort það væri einhver skák mennska hér og svarið var að það væri ekki, en mætti alveg bæta úr því. MJM sagðist vilja opna umræðu um það í haust hvort áhugi væri fyrir því.

HS sagði frá Fornbókasögu hópnum og sagði hvað væri verið að lesa í vetur. Hann sagði frá ferð sem hópurinn fer í vor um Húnavatnssýslu og Borgarfjörð. MJM nefndi hvort ekki væri hægt að hafa kynningu á starfinu. HS sagði að það yrði myndasýning 11. maí n.k. þar yrði sagt frá starfinu og frá ferðinni, allir velkomnir. HS sagði að það væri mikill áhugi og það væri fjölgun í hópnum. HS spurði hvort fleiri eldri borgarfélög væru með sambærilega fornbókmenntahópa, MJM taldi að það væri ekki.

GÞJ sagði frá Öndvegisbókaklúbbnum og sagði frá bókum sem er verið að lesa í vetur og hvaða bækur hafa verið lesnar frá árinu 2014 en þá var klúbburinn stofnaður. Síðastliðinn vetur voru lesnar tvær bækur, seinni bókin, „Kona þriggja eyja“ fjallar um Ásu Wright Guðmundsdóttur sem bjó um tíma á Stykkishólmi, þangað ætlar klúbbfélagar að fara í maí.
Sagt var frá starfinu og fyrirkomulaginu á fundum m.a. fór klúbburinn á bókamarkað núna í vetur og freistaði þess að kaupa bækur sem búið var að velja fyrir næsta vetur.

JS og MB sögðu frá leikhúsferðum. Fram kom að það væri mjög erfitt að halda utan um skráningu á viðburðina þegar bæði væri hægt að skrá sig í Grænumörkinni og á netinu. Það var farið í tvær leikhúsferðir, fyrir og eftir áramót og síðan á vínartónleika í janúar Mjög góð þátttaka var á seinni sýninguna og vínartónleikana en þar fær félagið 50 miða til umráða. MJM kom með þá uppástungu að skráningin færi einungis á netinu. Auglýsa viðburðinn vel á opnu húsi og hafa kannski auglýsingu uppi við þar sem tekið er fram að einungis sé hægt að skrá sig á netinu. JS og MB töluðu um að erfitt væri að áætla rútukostnað af því það væri reynt að hafa hann í algjöru lágmarki, að væri því mjög slæmt þegar fólk skilar sér ekki sem búið var að panta far. Stungið var upp á að hafa rútukostnað aðeins yfir verði til að eiga smá sjóð í svona tilfellum. Rætt var um að auglýsa vel leiksýningar hjá leikfélögunum hér í nágrenninu og safnast í bíla.

HÞ og GÞJ sögðu frá Hörpukórnum þær sögðu að starfið gengi mjög vel og stjórnandinn væri mjög virkur og skemmtilegur. Kórinn æfir einu sinni í viku og syngur á hjúkrunarheimilunum hér í Árborg eftir áramótin. Tónleikar verða 3. maí og einnig tekur kórinn þátt í kóramóti með fjórum kórum 9. maí. Þetta er árlegur viðburður og verður að þessu sinni í Keflavík.

Ekki tóku fleiri til máls af nefndarfólki og var fundi slitið kl. 10.30

6. stjórnarfundur föstudaginn 17.04.26 kl. 10.30 í S1
Dagskrá
1. Fundur settur kl. 10.45

2. Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt.

3. Vor í Árborg : JS skírði frá því að kvenfélagið er ekki til í að vera með kaffisölu á sumardaginn fyrsta. Ákveðið að stjórnin helli upp á könnuna og Grímur bakari ætlar að skaffa kleinur og snúða með mjög miklum afslætti. MJM setur auglýsingu á netið.

4. Frá Færeyjarferðarnefndinni: Fundur verður kl. 13.30 með power point sýningu og fólk verður beðið að skrá sig í ferðina til að fá heildarsýn hvað verða margir. Reiknað er með að ca. 50 manns geti komið með í þessa ferð upp á stærð á rútu.

5. Opin hús 16.apríl tókst með eindæmum vel og Andrea Jónsdóttir var skemmtileg og fléttaði saman tónlist og gömlum endurminningum frá æskuárunum á Selfoss. 30.04. verður Theódór Frans með skemmtilegt innlegg eins og honum er lagið.

6. Dansleikur 10. 04. MJM þakkaði stjórninni fyrir gott starf og það voru allir sammála um að það væri mikil þörf á svona dansleikjum og spurning hvort félagið ætti ekki að halda svona dansleiki oftar í Félagslundi. 115 manns borguðu sig inn á ballið og það var góður hagnaður.

7. Önnur mál : MJM sagði frá fundi um hvað ætti að gera við eina og hálfa milljón sem er styrkur frá Árborg. Ákveðið var að kaupa skjávarpa í aðalsalinn. Einnig var samþykkt að kaupa filmu í glervegginn á milli salanna. Rætt um að hafa myndir af fjöllum t.d. Ingólfsfjalli með nöfnum á kennileitum. Einnig var rætt um nýtt hljóðkerfi í húsið og það yrði að vera tilbúið í haust.

8. Landsfundurinn er 29. apríl á Grandhóteli og byrjar kl. 09.30. JS, MH, BG og MJ ætla að mæta á fundinn með Magnúsi.

9. Ellý Tómasdóttir hafði samband og vill fá samtal um velferðarstarf Árborgar.

10. Sindri Mjölnir hafði samband og spurði hvort það hefði verið tekið út af FEB síðuni auglýsingu um aðstoð við eldri borgara við ýmis tæknimál. MJM sagðist hafa tekið þetta út af síðunni vegna þess að það væri oft vafasamir menn að bjóða svona þjónustu. MJM ætlar að segja frá þessari þjónustu á opnu húsi og vill fá Sindra til að vera með kynningu á þessari þjónustu.

11. Ákveðið var að nýja og gamla stjórnin hittist í River Side 22. maí n.k. kl. 18.00.

12. Næsti stjórnarfundur 08.05.26 fyrir framboðsfundinn kl. 11.00

Fundi slitið kl. 11.55

___________________________ ____________________________
Brynhildur Geirsdóttir ritari Magnús J. Magnússon formaður

———————————————–
Jóna Sigurbjartsson varaformaður.

Eldri stjórnarfundir

7. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi 7. stjórnarfundur Febsel föstudaginn 22.05. 2026 kl. 18.00 haldin íHótel SelfossMætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir(JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritari, Margrét Jónsdóttir(MJ)...

5. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (10)/2026) 5. stjórnarfundur miðvikudaginn 07.04.26 kl. 10.30 í S1 Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir(JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritara, Margrét Jónsdóttir(MJ) gjaldkeri,...

4. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi(9)/2026) 4. stjórnarfundur miðvikudaginn 01.04.26 kl. 10.30 í S1Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir(JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritara, Margrét Jónsdóttir(MJ) gjaldkeri,...

3. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar Félags Eldri Borgara Selfossi (08/2026)3. stjórnarfundur föstudaginn 20.03.2026 kl.09.30 – 12.00Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna S. Sigurbjartsdóttir(JSS), Brynhildur Geirsdóttir ritari, (BG), Margrét Jónsdóttir (MJ) gjaldkeri,...

2. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar Félags Eldri Borgara Selfossi (07/2026)2. stjórnarfundur föstudaginn 06.03.2026 kl.10.30 – 12.00Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Brynhildur Geirsdóttirritari, (BG), Margrét Jónsdóttir (MJ) gjaldkeri , Valdimar Bragason (VB)meðstjórnandi,...

1. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar Félags Eldri Borgara Selfossi (06/2026) 1 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 20.02.2026 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Margrét Jónsdóttir (MJ)galdkeri, Valdimar Bragason (VB) meðstjórnandi, Brynhildur...

21. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (05/2026) 21 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 19.02.2026 kl. 12.45 í S1 Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...

20. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (04/2026) 20 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 13.02.2026 kl. 10.00 í S1 Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...

19. stjórnarfundur

Stjórn FEBSEL 2025 – 2026 --------------------------------------------------------------------------- 19. stjórnarfundur föstudaginn 06.02.26 kl. 10.30 í S1 FUNDARGERÐ Mætt:      MJM, ÓI, VB, ÓS, EJ, ÓB Forföll:   MJ Geymsluskoðun: Stjórn félgasins fór og skoðaði...

18. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (02/2026) 18 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 23.01.2026 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...