893 2136

febsel@febsel.is

Smella hér fyrir Facebook síðu Febsel →

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (10)/2026)

5. stjórnarfundur miðvikudaginn 07.04.26 kl. 10.30 í S1

Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir
(JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritara, Margrét Jónsdóttir
(MJ) gjaldkeri, Valdimar Bragason (VB) og Gils Einarsson (GE)
Dagskrá

1. Fundur settur kl. 10.30

2. Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt.

3. Dansleikur í Félagslundi (Ball) 10.04.26: Ákveðið að kaupa gos og miða við
100 manns og M.J.M tók að sér að athuga við hvern er best að versla upp á
að mega skila ef það verður mikill afgangur. Rætt um hvort það eigi að rukka
fargjaldið í rútunni og samþykkt að það væri betra en að rukka í Félagslundi.
Jón Bjarnason ætlar að sjá um dagskrána á ballinu og veit ekki enn þá hvað
hann vill fá greitt fyrir. Rætt um að tala við Kristján harmónikkumann um
hvort harmónikkufélagarnir væru til í að vera með músík milli 19 og 20 í
Félagslundi þegar fólkið er að koma. Einnig var rætt um að athuga með
línudanshópinn hvort þau væru til í að vera með smá atriði BG ætlar að
kanna það.
Rætt um hvar næsta ball eigi að vera, samþykkt að athuga með uppsveitir.

4. Fundur með bæjarstjórn og öldungaráði: Guðrún Þóranna mætti á fundinn kl.
11.00, rætt var um fyrirhugaðan fund með öldungaráði og bæjarstjórn sem
verður 9. maí kl. 16.30 í S1. Rætt var um ályktun sem var samþykkt á
aðalfundi FEB 19. febrúar sl.

5.
Ályktun aðalfundar Félags eldri borgara Selfossi haldinn 19. febrúar
2026.

Aðalfundur Félags eldri borgara á Selfossi, FEBSEL, haldinn í Mörk
Austurvegi S1 þann 19. febrúar 2026, leggur áherslu á að vegna
fyrirsjáanlegrar fjölgunar eldra fólks í sveitarfélaginu á næstu árum er
brýnt að:

Sveitarfélagið Árborg hlutist til um að í aðal- og deiliskipulagi verði rými fyrir
félagslegar- og almennar leiguíbúðir fyrir eldra fólk.
• Auka búsetukosti eins og lífsgæðakjörnum þar sem heimili og þjónusta eldra
fólks er tengd saman og með það að markmiði að auka öryggi og lífsgæði þessa
hóps.
• Huga þarf að stækkun húsnæðis/rými fyrir ört vaxandi félagsstarf vegna
mikillar fjölgunar eldra fólks í FEB-SEL.
• Hafa stjórn FEB-SEL með í ráðum við uppbygginguna vegna hugsanlegrar
nýtingar húsnæðis til félagsmála vegna fjölgunar félagsmanna."
Rætt um þjónustu samning fyrir árið 2026 og í hvað þeir peningur fari hjá
félaginu.
Guðrún spurði hvort það væri möguleiki að hafa leikfimina sem Árborg bíður
uppá einnig á sumrin, hún sagði að það væri mjög margir sem þyrftu á þessari
leikfimi að halda þá. Stjórnin var sammála um að ólíklegt væri að það yrði
hægt að semja um það. Guðrún benti á efni á Árborgarvefnum sem heitir,
hreyfing í heimahúsi sem er sniðið fyrir eldri borgara og væri mjög sniðugt að
benda fólki á þetta.
Rætt um að hækka bekki fyrir eldri borgara hjá bænum svo þeir eigi auðveldara
með að standa upp af þeim.
Rætt um leigubílaþjónustu fyrir eldri borgara sem eru 20 ferðir á mánuði,
klukkutími fer í hverja ferð.
Rætt um þrif á vegum bæjarins hjá eldri borgurum hvernig þau eru framkvæmd
en að mati margra sem eru að fá þessar þjónustur er margt ábótavant við þær.
Ákveðið að ræða þessa hluti á fundinum 9. maí.
Guðrún ræddi um að það þyrfti að leita að fólki sem býr eitt og reyna að virkja
það til að taka þátt í félagsstarfinu. Rætt um að ríkið þurfi að styðja við þennan
málaflokk svo hægt sé að hafa tengiráðgjafa sem vinna markvisst í þessum
málum.
Rætt um hvort félagið gæti komið að einhverju félagsstarfi fyrir eldri borgara á
hjúkrunarheimilunum en þar virðist margt mega bæta.
Guðrún las upp fundargerð frá síðasta fundi öldungaráðs. Rætt um að fulltrúar
öldungaráðs frá Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfoss fundi saman.

Rætt um að gera ráð fyrir að öldungaráð og stjórn geti komið að málum á opnu
húsi nokkrum sinnum á árinu. Guðrún stakk upp á að hún kæmi á opið hús á
fimmtudaginn með smá kynningu. Það var samþykkt.
6. Önnur mál: MJM ræddi um að nefndir sem eftir eru að kynna starfið komi á
fundinn 17. apríl.
Rætt um að tala við kvenfélagið um að hafa kaffi á sumardaginn fyrsta JS
tók að sér að tala við þær.
Fundur með framboðum flokkanna verður 8. Maí kl. 14.00 stjórnin þarf að
mæta kl. 13.30 og gera salinn klárann.
VB spurði hvort það væri von á fleiri fánastöngum og MJM sagði að það
væri klárt.
7. Næsti stjórnarfundur verður 17.04.26
Fundi slitið kl. 12.00

___________________________ ____________________________
Brynhildur Geirsdóttir ritari Magnús J. Magnússon formaður

———————————————–

Jóna Sigurbjartsson varaformaður.

Eldri stjórnarfundir

4. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi(9)/2026) 4. stjórnarfundur miðvikudaginn 01.04.26 kl. 10.30 í S1Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir(JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritara, Margrét Jónsdóttir(MJ) gjaldkeri,...

3. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar Félags Eldri Borgara Selfossi (08/2026)3. stjórnarfundur föstudaginn 20.03.2026 kl.09.30 – 12.00Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna S. Sigurbjartsdóttir(JSS), Brynhildur Geirsdóttir ritari, (BG), Margrét Jónsdóttir (MJ) gjaldkeri,...

2. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar Félags Eldri Borgara Selfossi (07/2026)2. stjórnarfundur föstudaginn 06.03.2026 kl.10.30 – 12.00Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Brynhildur Geirsdóttirritari, (BG), Margrét Jónsdóttir (MJ) gjaldkeri , Valdimar Bragason (VB)meðstjórnandi,...

1. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar Félags Eldri Borgara Selfossi (06/2026) 1 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 20.02.2026 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Margrét Jónsdóttir (MJ)galdkeri, Valdimar Bragason (VB) meðstjórnandi, Brynhildur...

21. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (05/2026) 21 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 19.02.2026 kl. 12.45 í S1 Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...

20. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (04/2026) 20 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 13.02.2026 kl. 10.00 í S1 Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...

19. stjórnarfundur

Stjórn FEBSEL 2025 – 2026 --------------------------------------------------------------------------- 19. stjórnarfundur föstudaginn 06.02.26 kl. 10.30 í S1 FUNDARGERÐ Mætt:      MJM, ÓI, VB, ÓS, EJ, ÓB Forföll:   MJ Geymsluskoðun: Stjórn félgasins fór og skoðaði...

18. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (02/2026) 18 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 23.01.2026 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...

17. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (01/2026) stjórnarfundur Febsel föstudaginn 09.01.2026 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...

16. stjórnarfundur

Stjórn FEBSEL 2025 – 2026 --------------------------------------------------------------------------- stjórnarfundur föstudaginn 12.12.25 kl. 10.30 í Fosstúni 7 FUNDARGERÐ Mætt: MJM formaður, ÓI varaformaður, EJ gjaldkeri, MJ ritari, VB    meðstjórndi, ÓS, varamaður,...