Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (01/2026)
- stjórnarfundur Febsel föstudaginn 09.01.2026 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk.
Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB) meðstjórnandi Ólafía Ingólsfsdóttir (ÓI) varaformaður Ólafur Backman (ÓB) varamaður og Ólafur
Dagskrá
- Fundur settur. Formaður setur fundinn. Óskar fundamönnum gleðilegs árs.
- Fundargerð síðasta fundar lögð fram.
- Bragi bæjarstjóri kemur á fundinn. Bragi mætti ásamt Sigþrúði. Formaður bíður þau velkomin.
- Samningur við félagið. Nýr samningur liggur fyrir milli sveitarfélagsins og febsel hann verður undirritaður á næsta opnu húsi sem verður 15.01. Bragi vill fá umræður ef fólk vill spyrja að einhverju. ÓS segir að á því opnu húsi verði spennandi dagskrá. MJM fjallaði aðeins um samninginn og ítrekaði ánægju. MJM talaði um hvort sveitarfélagið gæti komið til móts við félagið með að koma inn í greiðslur vegna stólaleikfimi og stólajógað. Mikil fjölgun hefur verið á nýtingu á þeim tímum. Bragi biður um að sent verði til Sigþrúðar allt varðandi þetta. MJM rökstuddi hvers vegan við gerum þetta. Bragi sagði ánægðu sína hvað við værum að gera. Talað var aðeins um fólk sem kemur frá öðrum sveitarfélögum og nýtir sér það sem er í boði fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu Árborg. Sigþrúður talaði um tengjaráðgjafa sem er Bylgja hún sér um tengingu á milli eldri borgara og ýmsa félaga um verkefni sem var styrkt af ríkinu sem er að hætta núna þar sem peningar eru búnir og Bragi sagði að gott væri ef Febsel sendi þeim áskorun varðandi þetta verkefni þar sem sveitarfélagið er að reyna að fá áfram fjárveitingu vegna þessa verkefnis. MJM talaði síðan um kostnað sem Febsel hefur lagt út varðandi áhöld og annað hvort sveitarfélagið kæmi eitthvað á móti. MJM ítrekaði að félagið hitti Bæjarstjórn í vor til að fara yfir samstarfið. Meta þarf hvenær fundurinn yrði þar sem kosningar eru 16. 05. Hvort ætti að hafa fundinn áður eða eftir að ný bæjarstjórn er tekin við. Passa þarf vel upp á að formið haldi varðandi samstarfið. MJM upplýsti Braga og Sigþrúði og fundinn um að formaður LSB komi 14.01 og tali um réttindi og skyldur eldri borgara. MJM spurði hvort fundarmenn vildu spyrja bæjarstarfsmenn um eitthvað. Talað var um hvort ný verkefni kæmu til greina fá ungmennaráðið t.d á fund hjá Febsel. MJM þakkað Braga og Sigþrúði fyrir samstarfið.
- Dagskrá fram að aðalfundi. MJM talaði um að komu LEB og hann er búin að tala við Öndvegisbókaklúbbinn um að færa sig fram um dag þar sem fundurinn verður 14.01 kl 10.00. þetta verður kynning á landssamtökunum. 5 stjórnarfundir eru fram að næsta aðalfundi. Opin hús verða 5 og dagskrá er tilbúin frá viðburðarstjórninni. Ós fór yfir alla viðburði fram á vorið. Síðasta opna hús verður 14.05 í Selfosskirkju. En alltaf er eldri borgara messa á uppstigningardaginn og það á að hvetja fólk til að fara í þá messu. Búið er að láta kvenfélagið vita með dagskránna fram á vor.
- Aðalfundur FebSel. Aðeins talað um fundinn hvort skýrslur nefnda væru úttekt úr stærri skýrslu. Talað um hvenær byrjað yrði að tala um skjávarpamálin hvort ekki ætti að fá starfsmann sveitarfélagsins sem sér um það mál í heimsókn og farið yrði yfir málið. EJ fór aðeins yfir drög af ársreikning félagsins. EJ fór aðeins yfir hverjir ekki greiddu félagsgjaldið.
- Uppstillingarnefnd kemur á fundinn. Gísli Geirs og Helga Guðrún mættu á fundinn MJM bauð þau velkomin og sagði að spennandi verkefni væri fram undan við að finna 4 í stjórn og 1 skoðunarmann. Umræður um tillögur að nýju fólki í stjórn. Stjórnarmenn fara í þá vinnu að finna félaga til að fara í stjórn.
- Önnur mál. Gísli kom með fyrirspurn varðandi fundi hjá bæjarstjórn þegar þeir eru með stærri fundi þá eru þeir í stóra salnum og Hörpukórinn þarf að víkja með engum fyrirvara. ÓS kom með til upplýsingar hann hefur verið í sambandi við Ping kong varðandi dúk á snókerborðið maður þar er að finna mann til að setja nýjan dúk á borðið. ÓS upplýsti um gang mála. Hann er búin að nefna það við karlana í bílskúrnum hvort þeir gætu pússað og gert það sem þeir gætu við snókerborðið. ÓS sagði einnig að hann væri búin að vera í sambandi við geymsluna sem ekki væri í lagi. Heiðrún er að vinna í því máli. Fylgjast þarf vel með framvindunni en Árblik á ekki að vera með aðgang af þessari geymslu. VB kom með tillögu um að einn úr stjórninni yrði með lyklavöld. MJM kom með þá tillögu um húsvörð FEBSEL. Fyrirspurn kom til formanns varðandi prentun frammi hvort það ætti að greiða, formaður taldi að félagið sæi um þann kostnað þar sem spila-og klúbbar væru að nota prentarann.
- Fundi slitið kl 12.11
Næsti fundur 23.01 kl. 10.30 í S1
___________________________ ____________________________
Margrét Jónsdóttir ritari Magnús J. Magnússon formaður
Sigurðsson (ÓS) varamaður.
Eldri stjórnarfundir
10. stjórnarfundur
10. stjórnarfundur 19.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (13/2024).Tíundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.09.2024 í Uppsölum í Grænumörk Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
09. stjórnarfundur
09. stjórnarfundur 6.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (12/2024).Níundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 6.09.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
08. stjórnarfundur
08. stjórnarfundur 23.ágúst 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (11/2024).Áttundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 23.08.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...
07. stjórnarfundur
07. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (10/2024).Sjöundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 8.8.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...
06. stjórnarfundur
06. stjórnarfundur 24.maí 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (9/2024).sjötti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 10:30 föstudaginn 24.05. 2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
05. stjórnarfundur
05. stjórnarfundur 10.maí 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (8/2024).fimmti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 10.05.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...
04. stjórnarfundur
04. stjórnarfundur 19.apríl 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (7/2024).Fjórði fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 19.04.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...
03. stjórnarfundur
03. stjórnarfundur 5.apríl 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (6/2024).Þriðji fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 05.04.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari,...
02. stjórnarfundur
02. stjórnarfundur 22.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (5/2024).Annar fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 22.03.2024, kl. 9:00í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
01. stjórnarfundur
01. stjórnarfundur 1.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (4/2024).Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 01.03.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ)...
