10. stjórnarfundur
19.september 2024
-
Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (13/2024).
Tíundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.09.2024 í Uppsölum í GrænumörkMætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Bachman (ÓB) meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn.
1. Fundur settur kl. 13:00
2. Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt samhljóða.
3. Fundur formanna félaga eldri borgara á Suðurlandi 01.10.24. Fundurinn verður á Höfðabrekku í Vík. Kl. 12:30 og hefst með súpu. Borist hafa boð frá öllum félögum á Suðurlandi og munu þau öll senda fulltrúa. Helgi Pétursson formaður LEB og Björn Snæbjörnsson formaður kjaramálanefndar LEB munu mæta á fundinn með upplýsingar frá landssamtökunum og kjaranefndinni.
4. Fundur verður á vegum LEB og SÍS, Samtökum íslenskra sveitarfélaga með Öldungarráðum á landsvísu 17. október kl. 13:00 á Stórhöfða 35. Þar veður fjallað um hlutverk öldungarráða.
5. Frá kjaramálafundi LEB 09.09.24. Fundur stjórnar LEB og Kjaranefndar LEB var haldinn 09.09.24. Ákveðið að halda landshlutafundi um allt land á haustdögum og byrja á fundi á Suðurlandi 01.10.24. Ákveðið að einbeita sér að einu máli í einu og leiða það til lykta. Ekki vera með marga bolta á lofti í einu. Nú eru það kjör þeirra sem minnst hafa og frítekjumarkið! Formaður kjaranefndar LEB er Björn Snæbjörnsson.6. Efni frá síðasta fundi. Sundjóga frestast fram yfir áramót. Dansfærninámskeið verður á föstudögum í M2, það er frítt og verður opið fyrir áhugasama, spænskur kennari. MJM hitti Einar Sumarliðason sem sá um glervinnsluna í nokkur ár. Einar getur ekki verið áfram vegna heilsuleysis og kom hann í síðustu viku og gekk frá gögnum og tók það sem honum tilheyrði. Rýmið sem glervinnslan var í tók þrjú herbergi, stjórnin mun hittast nk. fimmtudag 26. sept. kl. 12 og taka til í þessu rými og ganga frá því sem tilheyrir glervinnslu. Poststulín og keramik mun verða flutt í þetta rými og er nýi brennsluofninn staðsettur þar.
7. Kynningarfundur dagsins. MJM mun kynna dagskrána og munu nokkrir leiðbeinendur segja ítarlegar frá sínum verkefnum. Jóhanna frá Rauða krossinum kemur og segir frá sjálfboðastarfi og ýmsu sem Rauði krossinn er að gera til að minnka einsemd og einangrun fólks. ÓS mun segja frá stöðu verkefnisins Karlar í Skúrum
8. Önnur mál
a) Fundur verður í Öldungaráði Árborgar. 27. sept.
b) Tekið verður til í eldhúsaðstöðunni – tekin út örbylgjuofn og gömul kaffivél.
c) Opið hús verður áfram á fimmtudögum með hinum ýmsu viðburðum sem auglýstir verða í Dagskránni. VB mun hafa umsjón að setja inn auglýsingar og að semja við Dagskrána.
d) Frá eldri borgurum í Hveragerði – Dansleikur verð ur 15. okt. Tónlistin verður í umsjón Diskóteksins Dísu – Eldri borgarar á Suðurlandi boðnir velkomnir.
e) Heiðursfélagar – þeirra réttur, okkar skyldur. Vísað til næsta fundar.
9. Fundi slitið 13:45
Næsti fundur 04.10 kl. 10.30________________________________ ________________________________
Guðrún Þóranna Jónsdóttir Magnús J. Magnússon
ritari formaður
Eldri stjórnarfundir
11. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi11. stjórnarfundur Febsel fimmtudaginn 17.09.26 kl. 13.00 í S1Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna S. Sigurbjartsdóttir (JSS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritari, Valdimar Bragason (VB) meðstjórnandi...
10. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara SelfossiStjórn FEBSEL 2026 – 202710. stjórnarfundur föstudaginn 04.09.26 kl. 10.30 í S1 í GrænumörkMætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir (JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritari, Margrét...
9. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi9. stjórnarfundur föstudaginn 21.08.26 kl. 10.30 í S1Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna S. Sigurbjartsdóttir (JSS) vara formaður, Margrét Jónsdóttir (MJ) gjaldkeri, María Hauksdóttir (MH), Valdimar Bragason (VB) og...
8. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi 8. stjórnarfundur föstudaginn 07.08.26 kl. 10.30 í S1 Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna S. Sigurbjartsdóttir (JSS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritari, Margrét Jónsdóttir (MJ) gjaldkeri, María...
7. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi 7. stjórnarfundur Febsel föstudaginn 22.05. 2026 kl. 18.00 haldin íHótel SelfossMætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir(JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritari, Margrét Jónsdóttir(MJ)...
6. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (11)/2026) 6. stjórnarfundur Febsel föstudaginn 17.04.26 haldin í S1 í GrænumörkMætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir (JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritari, Margrét Jónsdóttir...
5. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (10)/2026) 5. stjórnarfundur miðvikudaginn 07.04.26 kl. 10.30 í S1 Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir(JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritara, Margrét Jónsdóttir(MJ) gjaldkeri,...
4. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi(9)/2026) 4. stjórnarfundur miðvikudaginn 01.04.26 kl. 10.30 í S1Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna Sigurhjartardóttir(JS) vara formaður, Brynhildur Geirsdóttir (BG), ritara, Margrét Jónsdóttir(MJ) gjaldkeri,...
3. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar Félags Eldri Borgara Selfossi (08/2026)3. stjórnarfundur föstudaginn 20.03.2026 kl.09.30 – 12.00Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna S. Sigurbjartsdóttir(JSS), Brynhildur Geirsdóttir ritari, (BG), Margrét Jónsdóttir (MJ) gjaldkeri,...
2. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar Félags Eldri Borgara Selfossi (07/2026)2. stjórnarfundur föstudaginn 06.03.2026 kl.10.30 – 12.00Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Brynhildur Geirsdóttirritari, (BG), Margrét Jónsdóttir (MJ) gjaldkeri , Valdimar Bragason (VB)meðstjórnandi,...
