05. stjórnarfundur
10.maí 2024
Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (8/2024).
fimmti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 10.05.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5.
Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Bachman (ÓB) meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn.
- Fundur settur af formann kl. 10:30.
- Fundargerð síðasta fundar lögð fram. Samþykkt samhljóða
- Drög að samningurinn við Árborg. Farið yfir samninginn sem stjórnarmenn fengu sendan og gerðar nokkrar athugasemdir. MJM mun koma þeim athugasemdum til Sigþrúðar Birtu Jónsdóttur.
- Af formannafundi í Vestmannaeyjum. Góður fundur, MJM, ÓI og ÓS mættu frá FebSel. Þar var meðal annars rætt um þá tillögu frá FebReng að allir eldri borgarar landsins myndu skila auðu í næstu alþingiskosningum og mæta kl. 12:00 á kjörstað. Tillagan fékk ekki hljómgrunn annarra fundarmanna en verður trúlega rædd á Landsfundi FEB 14. maí.
- Lista- og handverkshátíðin – Í ár voru frekar fáir sem mættu með muni. Fjöldi fólks kom þó í kaffi til að spjalla og skoða. MJM hefur þegar pantað húsið næsta ár á Vor í Árborg þá í tvo daga. Listasýningar verða auglýstar í haust á kynningafundinum og fólk á námskeiðum hvatt til að sýna afrakstur vetrarins.
- Leikhópurinn okkar 13.05 – verður með opna æfingu í M2 og fólk boðið velkomið kl. 14:00.
- Landsfundur 14.05 – Það fara fjórir fulltrúar frá félaginu en svo eru allir velkomnir með tillögurétt. Fulltrúar FebSel eru MJM, ÓI, EJ og ÓS. MJM fór yfir dagskrá fundarins.
- Opið hús 16.05. Boðið verður upp á harmonikkuleik, línudans og leiklestur. MJM mun slíta þessu síðasta Opna húsi FebSel í vetur og vera með lokaorð.
- júní 2024 – Dagskráin verður svipuð og undanfarin ár. MJM gerir tillögu um að stjórn raði upp salnum á föstudegi 14. júní.
- Námskeið veturinn 2024 – 2025. Bjóða fólki upp á sama tíma og ramma eins og í vetur, verður skoðað frekar í haust.
- Fundartímar stjórnar – stjórn var sammála um að halda því fyrirkomulagi stjórnarfunda sem hefur verið á síðasta starfsári.
- Önnur mál
- Ísfirðingar koma 8. júní. FebSel tekur á móti þeim.
- Plöstunarvél verður keypt fyrir félagið. EJ mun sjá um það
- Hjartastuðtækið – það er talið ónothæft. Nýtt tæki verður keypt. EJ mun sjá um það.
- Rekstrarreikningi fyrsta ársfjórðungs var dreift af EJ. Það eru 685.194 kr. í hagnað.
- ÓS sagði frá Uppstigningadegi í Selfosskirkju. Þar var messa á degi aldraðra. Hingað kom kór eldri borgara frá Bessastaðasókn, Garðálfar, og prestur og djákni. Hörpukórinn söng við messuna ásamt Garðálfum og tveir prestar prédikuðu með samtali. Prestur Bessastaðasóknar bauð kirkjufólki til messu í Bessastaðakirkju að ári.
- maí heppnaðist vel – FebSel tók þátt í kröfugöngu.
- Ágætir hljóðnemar eru notaðir í Mörk 1 og þarf að endurnýja rafhlöður öðru hverju. Stjórnin telur að eðlilegt að sveitarfélagið sjái um það. MJM mun fylgja því eftir.
Fundi slitið 11:50
Næsti fundur 24.05.24 kl. 10.30 verður meðal annars nýttur til að rölta um og skoða aðstöðu og ræða starf næsta vetrar.
________________________________ ________________________________
Guðrún Þóranna Jónsdóttir Magnús J. Magnússon
ritari formaður
Eldri stjórnarfundir
Opið hús
Árið hófst með látum og tæpt að tíminn dygði til að ljúka því sem fyrir lá. Meðan gestir í fullum salnum voru að ljúka við að sporðrenna rjómavöfflunum, var ný og nútímaleg heimasíða félagsins opnuð. Sigurður Júlíusson hjá IDÉ auglýsingastofu hefur unnið að síðunni og...
Tónlistar- og kaffiveisla
Eftir að þúsundasti félaginn í FebSel hafði verið heiðraður með blómvendi (sjá hér fyrir neðan) steig fram blokkflautusveit frá Tónlistarskóla Árnessýslu. Þarna komu fram einstaklingar, minni hópar og svo allir saman. Afskaplega var þetta nú skemmtilegt. Við þetta...
Fornbókalestur: Fatnaður á víkingatíma
Það hitnaði heldur í kolunum í tengslum við lestur þessa morguns, þegar fatnaður reyndist verða meginþemað. Katrín dró fram leikmuni til útskýringar og fór á kostum við að gera sem gleggsta grein fyrir því hvernig þessu var öllu háttað í "denn". Hannes tók að sér...
Ný vefsíða FebSel
Idé auglýsingastofa óskar Félagi eldri borgara á Selfossi innilega til hamingju með nýja vefsíðu Nýja vefsíðan er hönnuð með þarfir félagsmanna að leiðarljósi og býður upp á einfalt viðmót, upplýsingar um viðburði, þjónustu félagsins og ýmist annað hagnýt efni. Idé...
Myndir úr starfinu
Félagsstarf eldri borgara á Selfossi er ómissandi vettvangur fyrir þá sem vilja njóta lífsins í góðum félagsskap! Hér er alltaf eitthvað spennandi á döfinni, hvort sem það eru skemmtikvöld, gönguferðir, íþróttir eða handavinna. Starfið fer fram í hlýlegu umhverfi...
Litlu jólin
Það var ánæjulegt að finna þann metnað sem kvenfélagið lagði í stundina, með skreytingum, heitu súkkulaði með rjóma og smákökum. Gaf þessu ansi hátíðlegan blæ. Frænkurnar Hugrún Birna og Bryndís Embla heilluðu mannskapinn með tónlistarflutningi. Ingibjörg Kristín...
Bókasafnsferð
Afsakið góðir félagar. Ég fékk þá flugu í höfuðið að setja hér inn á síðuna nokkrar myndir af eldri borgurum sem eru í ýmsum öðrum hópum en á vegum félagsins okkar. Ég þekki nú ekki alla slíka hópa en ég datt inn á bókasafnið í morgun og þar er hress hópur þar sem...
13. stjórnarfundur
13. stjórnarfundur 1.nóvember 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (16/2024). Þrettándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 01.11.2024 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...
12. stjórnarfundur
12. stjórnarfundur 18.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (15/2024).Tólfti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 10:30 föstudaginn 18.10.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
11. stjórnarfundur
11. stjórnarfundur 4.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (14/2024). Ellefti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.0.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...