893 2136

febsel@febsel.is

Smella hér fyrir Facebook síðu Febsel →

Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi  (18/2025)

  1. stjórnarfundur FebSel föstudaginn 28.11.25 í S1 í Grænumörk.

 

Mætt voru: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Valdimar Bragason (VB) meðstjórnandi, Ólfur Sigurðsson (ÓS) varastjórn, Ólafur Backmann (ÓB).

Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari boðaði forföll. Ólafía Ingólfsdóttir ritaði fundargerð í fjarveru MJ.

 

  1. Formaður setti fund kl 10:37 og bauð fundarmenn velkomna.
  2. Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt.
  3. Afgreiðsla mála frá síðasta fundi.
  4. a) Uppgjör vegna árshátíðar. EJ fór yfir uppgjörið. Tekjur voru kr. 1.320.000 og tap kr 346. Almenn ánægja var með árshátíðina mat, skemmtiatriði og alla umgjörð. MJM þakkaði hótelinu fyrir góða þjónustu og mat.
  5. b) Aðventuhátíðin 4. des. Ákveðið að afhenda “Sjóðnum góða” formlega ágóðan af bingói sem haldið var fyrr í vetur en búið er að koma peningum til sjóðsins.
  6. c) Kallar í skúrnum. Samtal hefur átt sér stað milli fulltrúa Árborgar og stjórnar FebSel um hvar sú starfemi gæti verið í Grænumörk en komið hefur fram beiðni frá nokkrum mönnum um að fá samastað. Niðurstaðan er að þeir fá aðstöðu okkar í Uppsölum og verður kallað “Kallar í Uppsölum” og er mjög mikil ánægja með þá niðurstöðu. Þessi starfsemi verður alla virka daga meðan opið er í félagsmiðstöðinni.
  7. d) Bragi Bjarnason, bæjarstjóri kemur á fund stjórnar þann 9. janúar 2026 og ræðir við okkur um samning, greiðslur og annað viðvíkjandi félaginu. Nokkur umræða var um hækkun á samingi og hvað þyrfti að gera til að bæta aðstöðuna í Grænumörk.
  8. Aðalfundur FebSel 19. Febrúar 2026 – fyrsta umræða.

Tveir stjórnarmenn hætta þ.e. Ólafía Ingólfsdóttir varaformaður og Elín Jónsdóttir gjaldkeri. Þá hætta einnig báðir varastjórnarmenn þ.e. Ólafur Sigurðsson og Ólafur Backmann.

Farið var yfir nefndir félagsins.  ÓI tók að sér að tala við formann uppstillinganefndar.

Ákveðið að skipa bingónefnd á næsta stjórnarfundi.

 

  1. Hvað er framundan.
  2. a) Skreytingardagur 1. desember nk. Ákveðið að hittast kl 13:30 til að setja upp jólaskraut og jólatré. Höfum við auglýst eftir jólaskrauti frá fólki og virðist vera áhugi fyrir þessum degi hjá fólki.
  3. b) Aðventuhátíðin er 4.desember og hefst kl 14. Á dagskránni er hugvekja sr Önnu, jólasaga Ísleifs Jakobssonar, Hörpukórinn syngur jólalög og síðan er kaffihlaðborð hjá Kvenfélaginu. Umræður voru gjaldið á kaffinu sem er kr. 3.500. Ákveðið að fólk greiddi kr 2.500 og félagið greiddi kr 1.500, 500 kr væri þá aukastyrkur frá félaginu til kvenfélagskvenna fyrir frábæra samvinnu á árinu.
  4. c) Litlu jólin eru 11.desember. Þá er tónlist frá Tónlistarskóla Árnessýlu, jólasaga, smákökur og súkkulaði hjá kvenfélagskonum.
  5. d) Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru 8. Janúar 2026 kl 12:00. Félagið fékk 50 miða. Lagt verður af stað kl 10:30.
  6. e) Jólakveðja. Ákveðið að senda jólakveðju í útvarpið frá félaginu.
  7. f) Landsfundur LEB er ákveðinn 29.apríl n.k., ekki er komin staðsetning.
  8. g) MJM skýrði frá því að hann hefur tekið sæti í nefnd “Gott að eldast” á vegum félagsmálaráðuneytisins.

 

  1. Önnur mál.
  2. a) Stjórnarfundir verða 9 & 23 janúar 2026.
  3. b) Rætt um að fá fræðslu um gervigreind og netsvik. Viðburðarnefnd er að skoða það.
  4. c) Ball eldri borgara á Suðurlandi verður í okkar umsjá í vor. MJM lagði til að ballið yrði 10. apríl 2026 í Félagslundi en komið er tilboð frá þeim. Stjórnin samþykkti bæði dagsetningu og tilboð.
  5. d) Færeyjaferð. Rætt um ferð með ferju Smyril Line til Færeyja vorið 2027, kanna hugsanlega þátttöku og ræða við fyrirtækið. Stjórn samþykk þessu og verður þá skipuð ferðanefnd ef af verður.
  6. e) Stjórnarfundir framvegis í S1.

Næsti stjórnarfundur 12 desember kl 10:30 heima hjá ÓI.

Makar eru boðnir velkomnir kl 12:00

 

Fundi slitið kl 12:00.

 

 

______________________________                                    _____________________________                                      

Ólafía Ingólfsdóttir                                                      Magnús J. Magnússon

        ritaði fundargerð                                                                  formaður

 

 

Eldri stjórnarfundir

10. stjórnarfundur

10. stjórnarfundur 19.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (13/2024).Tíundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.09.2024 í Uppsölum í Grænumörk Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

09. stjórnarfundur

09. stjórnarfundur 6.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (12/2024).Níundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 6.09.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

08. stjórnarfundur

08. stjórnarfundur 23.ágúst 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (11/2024).Áttundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 23.08.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...

07. stjórnarfundur

07. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (10/2024).Sjöundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 8.8.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...

06. stjórnarfundur

06. stjórnarfundur 24.maí 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (9/2024).sjötti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 10:30 föstudaginn 24.05. 2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

05. stjórnarfundur

05. stjórnarfundur 10.maí 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (8/2024).fimmti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 10.05.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...

04. stjórnarfundur

04. stjórnarfundur 19.apríl 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (7/2024).Fjórði fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 19.04.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...

03. stjórnarfundur

03. stjórnarfundur 5.apríl 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (6/2024).Þriðji fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 05.04.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari,...

02. stjórnarfundur

02. stjórnarfundur 22.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (5/2024).Annar fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 22.03.2024, kl. 9:00í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

01. stjórnarfundur

01. stjórnarfundur 1.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (4/2024).Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 01.03.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ)...