893 2136

febsel@febsel.is

Smella hér fyrir Facebook síðu Febsel →

12. stjórnarfundur

18.október 2024

Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (15/2024).
Tólfti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 10:30 föstudaginn 18.10.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5.

Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Bachman (ÓB) meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn. Elín Jónsdóttir, gjaldkeri boðaði forföll.

  1. Fundur settur 10:30.
  2. Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt.
  3. Öldungaráðstefna 17.10 og um öldungaráð Svf. Árborgar. Góður fundur og góð mæting bæði í sal og á streymi. Tveir stjórnarmenn, MJM og ÓI fóru á fundinn og Bragi Bjarnason, bæjarstjóri mætti eftir hádegið þar sem formaður öldungarráðs Árborgar var upptekinn. Mjög fræðandi, Hafnarfjarðar- og Akureyrarmódelin voru kynnt, en þau teljast til fyrirmyndar fyrir önnur öldungarráð. Fram kom að í flestum öldungarráðum eru formenn úr hópi eldra fólks. Leb er í nýju húsnæði að Stórhöfði 31 húsi fagfélaganna og voru okkar fulltrúar mjög ánægðir með aðstöðuna. Formaður öldungaráðs Árborgar, Þórhildur Ingvadóttir mun koma á fund stjórnar 15. nóv. Síðan verður fundur í opnu húsi með öldungarráði Árborgar eftir áramót.
  4. Nefndir FEBSEL 2024 – 2025 Stjórnin fór yfir nefndir frá fyrra ári. Kjósa á kjörnefnd á aðalfundi en stjórn skráir og heldur utan um aðrar nefndir sem endurnýja sig sjálfar og/eða með aðstoð frá stjórn eftir aðalfund.
  5. Afgreiðsla mála frá síðasta fundi. Vinna við að tæma L3 gekk mjög vel og nú er postulín- og keramiknámskeiðin komin í það rými.– ÓS fór í gær og ræddi við hópinn sem er of stór og ætlar leibeinandinn að skipta hópnum. MJM fór og kynnti sér myndlistina á miðvikudögum. Dröfn Þorvaldsdóttir tekur að sér hópinn og heldur utan um hann. Tálgun er byrjuð, hún gengur vel. Aðventuhátíðin verður 4. des. MJM fær tilboð frá Hótelinu í dag varðandi meðlæti með kaffi.
  6. Hvað er framundan? Opið hús, 24. okt., Guðmunda Ólafsdóttir frá Héraðsskjalasafninu kemur þá og talar um fjallferðir, okt. kemur Bergsteinn Einarsson sem fjallar um um hernámsárin. MJM telur að stjórnin þurfi annars lagið að fá tíma í opnu húsi til að koma skilaboðum til fólks. Rætt um árshátíð og hvernig hún fari fram. 28. nóv. verður handverk og list íMörkinni Sýning og sala. Pantaðir hafa verið 50 miðar á Vinartónleika 9. jan.
  7. Önnur mál
  8. FebSuð saman. Það var ball í Hveragerði og mikið fjör. Það mættu um 200 manns. Ákveðið hefur verið að dansa á Hvolsvelli í mars og á Selfossi í maí
  9. Maður fluttur hingað sem spilar á harmonikku – býðst til að spila hér fyrir dansi með félögum. Ákveðið að þiggja það og finna tíma, tillaga um seinni hluta föstudags.
  10. MJM gerir tillögu um að þýða valið efni FebSel í pólsku og ensku. Stjórn var sammála því. MJM mun hafa samband við hugsanlega þýðendur.
  11. MJM kynnti hugmynd um að sækja um styrk til Eramus til að tengjast eldra fólks í Póllandi þar sem margir pólverjar eru á Íslandi. Erasmus+ áætlunin leggur áherslu á inngildingu og eitt af markmiðum hennar er að öllum séu tryggðir jafnir möguleikar á þátttöku. Erasmus+ styrkir verkefni sem stuðla að jöfnum tækifærum og fjölbreytni í samfélaginu.
  12. Heimasíðan FebSel – MJM leggur til að síðunni verði lokað . því hún er mjög þung og síðan verði byrjað frá grunni að gera nýja heimasíðu. Samþykkt.

Fundi slitið 11:59                Næsti fundur verður 01.11 kl. 10.30

________________________________           ________________________________

Guðrún Þóranna Jónsdóttir                               Magnús J. Magnússon

                                      ritari                                                              formaður

Eldri stjórnarfundir

11. stjórnarfundur

11. stjórnarfundur 4.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (14/2024). Ellefti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.0.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

10. stjórnarfundur

10. stjórnarfundur 19.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (13/2024).Tíundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.09.2024 í Uppsölum í Grænumörk Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

09. stjórnarfundur

09. stjórnarfundur 6.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (12/2024).Níundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 6.09.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

08. stjórnarfundur

08. stjórnarfundur 23.ágúst 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (11/2024).Áttundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 23.08.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...

07. stjórnarfundur

07. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (10/2024).Sjöundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 8.8.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...

06. stjórnarfundur

06. stjórnarfundur 24.maí 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (9/2024).sjötti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 10:30 föstudaginn 24.05. 2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

05. stjórnarfundur

05. stjórnarfundur 10.maí 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (8/2024).fimmti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 10.05.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...

04. stjórnarfundur

04. stjórnarfundur 19.apríl 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (7/2024).Fjórði fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 19.04.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...

03. stjórnarfundur

03. stjórnarfundur 5.apríl 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (6/2024).Þriðji fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 05.04.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari,...

02. stjórnarfundur

02. stjórnarfundur 22.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (5/2024).Annar fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 22.03.2024, kl. 9:00í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...