893 2136

febsel@febsel.is

Smella hér fyrir Facebook síðu Febsel →

13. stjórnarfundur

Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (17/2024).
Fjórtándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 15.11.2024 kl. 10:30

í Grænumörk 5.

Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Bachman (ÓB) meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn.

  1. Formaður setti fund kl. 10:30.
  2. Fundargerð síðasta fundar samþykkt samhljóða.
  3. Heimsókn úr stjórnkerfinu. Þórhildur Ingvadóttir formaður öldungarráðs og Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs mættu á fundinn. Umræður voru um verkefni öldungaráðs, bæjarstjórn Árborgar samþykkti erindisbréf í maí 2024 og átta fundir hafa verið haldnir í öldungaráði á kjörtímabilinu. Næsti fundur verður 6. desember. Ákveðið var að hafa pallborð með öldungaráði í Opnu húsi febrúar 2025 og einnig að öldungaráð fundi með bæjarstjórn Árborgar a. m.k. einu sinni á ári.

Liður í verkefninu Gott að eldast er fræðslustund fyrir eldra fólk og aðstandendur þeirra 21. nóvember kl. 17:00-18:30. Nú er unnið að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og benti Sveinn Ægir stjórninni á að nú væri tækifæri til að leggja fram óskir um ýmislegt sem vantar eins og búnaður vegna eldhúss og/eða í sali þar sem félagsstarfið fer fram, mikilvægt er að forgangsraða. Spurt var um hvort væri biðlisti að íbúðum í Grænumörk 5 og húsunum í 1 – 3. Þórhildur svaraði að það væri ekki mikið spurt eftir litlu húsunum en lengri biðlisti í Grænumörk 5. Rætt var um aðgengi í kring um blokkirnar í Grænumörk, ein gangbraut er til að komast yfir Austurveginn og fyrir þau sem eru með göngugrind er erfitt að komast að Nettó-versluninni vegna mikillar umferðar á bílastæðinu. MJM þakkaði gestunum komuna og vonast til áframhaldandi góðs samstarfs við sveitarfélagið.

 

  1. Afgreiðsla mála frá síðasta fundi.
  2. Árshátíðin gekk vel, góður matur og góð skemmtiatriði, 160.000 kr. kostuðu skemmtiatriðin. Það mættu 154 gestir heldur færri en á síðasta ári, það var hallarekstur. Rætt um að hafa aðeins einn rétt næst, lambasteik, og að bera hann á borð í stað þess að allir sæki sér af hlaðborði.
  3. Bingó, nú eru trommla og spjöld komin í hús. FebSel stefnir að því að halda bingó eftir áramót. Einnig er í boði fyrir Hörpukórinn að fá að halda bingó til fjáröflunar vegna utanlandsferðar í vor.
  4. Hvað er framundan?
  5. Opið hús 21. nóvember 20-30 börn sem eru í blokkflautusveit munu koma og flytja tónlist undir stjórn Helgu Sighvatsdóttur. Rætt um að setja upp palla fyrir flautusveitina á milli salanna. Hugmynd kom um að styrkja Tónlistarskólann ef það hentaði, stjórnin var sammála því. ÓS mun skoða það. EJ sagði að til væri sérstakur sjóður hjá félaginu. Hún mun kanna tilurð hans og upplýsa stjórn á næsta fundi.
  6. Það verður Handverks- og listmarkaður í Mörk 28. nóvember kl. 13:30.
  7. Aðventuhátíðin verður 4. desember á Hótel Selfoss kl. 14:00. Dagskráin verður hugvekja frá presti, leikhópurinn verður með atriði og Hörpukórinn syngur. Meðlæti og kaffi verður á 3000 kr. og er það niðurgreitt af FebSel.
  8. Önnur mál
  9. Kjaramálafundur verði boðaður eftir áramót hjá FebSel í Mörkinni.
  10. Abler – EJ hefur kannað betur foritið abler og telur það gæti nýst FebSel. Hún sagði að eldri borgarar í Garðabæ væru að nota abler til að halda utan um greiðslur fyrir námskeið. Það kostar um 13.000 kr. á mánuði. Stjórn samþykkti að taka forritið inn eftir áramót.
  11. Ákveðið var að Opið hús fimmtudaginn 30. janúar yrði dagur fyrir stjórnina og fjallað um starfsemi félagsins.
  12. Dröfn Þorvaldsdóttir hefur farið yfir skápinn góða í sal 1 og sorterað. Sumt nýtanlegt geymt, öðru hent og einhvað tekið frá fyrir hjúkrunarheimilin á Selfossi,
  13. Þúsundasti félaginn er genginn í FebSel.

 

Fundi slitið 12:30

 

Næsti fundur 29.11 kl. 10.30

 

________________________________           ________________________________

Guðrún Þóranna Jónsdóttir                               Magnús J. Magnússon

                                      ritari                                                                   formaður

Eldri stjórnarfundir

18. stjórnarfundur

18. stjórnarfundur stjórnarfundur föstudaginn 17.01.25 kl. 09:00 í Uppsölum Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (2/2025).Átjándi fundur stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 17.01.2025 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM)...

17. stjórnarfundur

17. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (1/2025).Sautjándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 03.01 2025 í Uppsölum í  Grænumörk 5.Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...

16. stjórnarfundur

16. STJÓRNARFUNDUR Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (19/2024).Sextándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 13.12.2024 í Fosstúni 7. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ)...

15. stjórnarfundur

15. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (18/2024).Fimmtándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 29.11.2024 kl. 10:30 í Grænumörk 5.   Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna...

13. stjórnarfundur

13. stjórnarfundur 1.nóvember 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (16/2024). Þrettándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 01.11.2024 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...

12. stjórnarfundur

12. stjórnarfundur 18.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (15/2024).Tólfti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 10:30 föstudaginn 18.10.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

11. stjórnarfundur

11. stjórnarfundur 4.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (14/2024). Ellefti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.0.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

10. stjórnarfundur

10. stjórnarfundur 19.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (13/2024).Tíundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.09.2024 í Uppsölum í Grænumörk Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

09. stjórnarfundur

09. stjórnarfundur 6.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (12/2024).Níundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 6.09.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

08. stjórnarfundur

08. stjórnarfundur 23.ágúst 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (11/2024).Áttundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 23.08.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...