893 2136

febsel@febsel.is

Smella hér fyrir Facebook síðu Febsel →

10. stjórnarfundur

19.september 2024

  1. Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (13/2024).
    Tíundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.09.2024 í Uppsölum í Grænumörk

    Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Bachman (ÓB) meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn.

    1. Fundur settur kl. 13:00
    2. Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt samhljóða.
    3. Fundur formanna félaga eldri borgara á Suðurlandi 01.10.24. Fundurinn verður á Höfðabrekku í Vík. Kl. 12:30 og hefst með súpu. Borist hafa boð frá öllum félögum á Suðurlandi og munu þau öll senda fulltrúa. Helgi Pétursson formaður LEB og Björn Snæbjörnsson formaður kjaramálanefndar LEB munu mæta á fundinn með upplýsingar frá landssamtökunum og kjaranefndinni.
    4. Fundur verður á vegum LEB og SÍS, Samtökum íslenskra sveitarfélaga með Öldungarráðum á landsvísu 17. október kl. 13:00 á Stórhöfða 35. Þar veður fjallað um hlutverk öldungarráða.
    5. Frá kjaramálafundi LEB 09.09.24. Fundur stjórnar LEB og Kjaranefndar LEB var haldinn 09.09.24. Ákveðið að halda landshlutafundi um allt land á haustdögum og byrja á fundi á Suðurlandi 01.10.24. Ákveðið að einbeita sér að einu máli í einu og leiða það til lykta. Ekki vera með marga bolta á lofti í einu. Nú eru það kjör þeirra sem minnst hafa og frítekjumarkið! Formaður kjaranefndar LEB er Björn Snæbjörnsson.

    6. Efni frá síðasta fundi. Sundjóga frestast fram yfir áramót. Dansfærninámskeið verður á föstudögum í M2, það er frítt og verður opið fyrir áhugasama, spænskur kennari. MJM hitti Einar Sumarliðason sem sá um glervinnsluna í nokkur ár. Einar getur ekki verið áfram vegna heilsuleysis og kom hann í síðustu viku og gekk frá gögnum og tók það sem honum tilheyrði. Rýmið sem glervinnslan var í tók þrjú herbergi, stjórnin mun hittast nk. fimmtudag 26. sept. kl. 12 og taka til í þessu rými og ganga frá því sem tilheyrir glervinnslu. Poststulín og keramik mun verða flutt í þetta rými og er nýi brennsluofninn staðsettur þar.
    7. Kynningarfundur dagsins. MJM mun kynna dagskrána og munu nokkrir leiðbeinendur segja ítarlegar frá sínum verkefnum. Jóhanna frá Rauða krossinum kemur og segir frá sjálfboðastarfi og ýmsu sem Rauði krossinn er að gera til að minnka einsemd og einangrun fólks. ÓS mun segja frá stöðu verkefnisins Karlar í Skúrum
    8. Önnur mál
    a) Fundur verður í Öldungaráði Árborgar. 27. sept.
    b) Tekið verður til í eldhúsaðstöðunni – tekin út örbylgjuofn og gömul kaffivél.
    c) Opið hús verður áfram á fimmtudögum með hinum ýmsu viðburðum sem auglýstir verða í Dagskránni. VB mun hafa umsjón að setja inn auglýsingar og að semja við Dagskrána.
    d) Frá eldri borgurum í Hveragerði – Dansleikur verð ur 15. okt. Tónlistin verður í umsjón Diskóteksins Dísu – Eldri borgarar á Suðurlandi boðnir velkomnir.
    e) Heiðursfélagar – þeirra réttur, okkar skyldur. Vísað til næsta fundar.
    9. Fundi slitið 13:45
    Næsti fundur 04.10 kl. 10.30

    ________________________________ ________________________________
    Guðrún Þóranna Jónsdóttir Magnús J. Magnússon
    ritari formaður

 

Eldri stjórnarfundir

Aðalfundur Félags eldri borgara Selfossi 2025

AÐALFUNDUR FÉLAGS ELDRI BORGARA Á SELFOSSI 20.02.25 AÐALFUNDUR FÉLAGS ELDRI BORGARA Á SELFOSSI 20.02.25 FUNDARGERÐ   Magnús J. Magnússson setur fund og leggur til að Guðmundur Kr. verði fundarstjóri og Guðrún Guðnadóttir og Margrét Jónsdóttir yrðu ritarar. Var það...

1. stjórnarfundur

1. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (6/2025). Fyrsti stjórnarfundur Febsel föstudaginn 28.02.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar...

3. stjórnarfundur

3. stjórnarfundur 28.03.25 Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (8/2025). 3 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 28.03.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari,...

Fyrirlestur – Eiríkur Orri

Fólkið dreif að og úr varð um 120 manna samkoma. Kvenfélagið sá auðvitað um veitingar í mannskapinn og svo steig Eiríkur Orri Guðmundsson, þvagfæraskurðlæknir á stokk og flutti einstaklega fróðlegt og skemmtilegt erindi um karlaheilsu, með sérstakri áherslu á það sem...

2. stjórnarfundur

2. stjórnarfundur 14.03.25 Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (7/2025). 2 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 14.03.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari,...

21. stjórnarfundur

21. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (6/2025).Tuttugasti og fyrsti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 13:00, fimmtudaginn 20.02.2023 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ)...

20. stjórnarfundur

20. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (3/2025).Tuttugasti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 14.02.2025 í Uppsölum í Grænumörk 5.     Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún...

19. stjórnarfundur

19. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (3/2025).Nítjándi fundur stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 31.01.2025 í Uppsölum í Grænumörk 5.   Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...

18. stjórnarfundur

18. stjórnarfundur stjórnarfundur föstudaginn 17.01.25 kl. 09:00 í Uppsölum Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (2/2025).Átjándi fundur stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 17.01.2025 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM)...