893 2136

febsel@febsel.is

Smella hér fyrir Facebook síðu Febsel →

AÐALFUNDUR FÉLAGS ELDRI BORGARA Á SELFOSSI 19.02.26

FUNDARGERÐ

1. Magnús J. Magnússson setur fund og leggur til að Halldór Páll Halldórsson verði fundarstjóri og Guðrún Guðnadóttir og Margrét Jónsdóttir yrðu ritarar. Var það samþykkt.

2. Halldór Páll tekur við fundarstjórn og þakkaði traustið.
Dagskrá fundarins;
– Skýrsla stjórnar
– Reikningar félagsins
– Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga felagsins.
– Skýrslur nefnda FebSel
– Kaffihlé
– Kosningar
– Önnur mál.

3. Skýrsla stjórnar. Magnús J. Magnússon

Ársskýrsla Félags eldri borgara Selfossi fyrir starfsárið 2025 – 2026.

Það starfsár sem nú er að kveðja hefur verið öflugt á margan hátt. Starfsemin hefur verið verulega öflug og mikil og góð þátttaka á öllum sviðum félagsstarfsins. Félagið varð 45 ára og Hörpukórinn 35 ára og var því fagnað á viðeiganid hátt.
Í árslok 2025 voru félagsmenn 1003 og eru því 42 fleiri en í árslok 2024. Árið 2025 skráðu sig 97 nýir félagar í félagið, 35 sögðu sig úr því og 35 létust á árinu. Ég bið ykkur um að minnast þeirra með því að rísa úr sætum.

Stjórnin 2025 – 2026

Stjórnina skipuðu: Magnús J. Magnússon, formaður, Ólafía Ingólfsdóttir varaformaður. Elín Jónsdóttir gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir ritari, Valdimar Bragason meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson og Ólafur Bachmann í varastjórn.

Stjórnarfundir

Stjórnarfundir hafa verið 21 á starfsárinu. Til okkar á stjórnarfundi hafa komið aðilar úr stjórnkerfinu til umræðu við okkur og er það gott að snertiflötur félagsins við stjórnkerfið sé góður. Ég vil þakka stjórnarmönnum fyrir gott samstarf svo og öllum þeim starfsmönnum Árborgar sem hafa unnið með okkur á liðnu starfsári.

Félagsstarf

Félagsstarf hefur verið afar öflugt sl. starfsár. Það eru rúmlega 35 atriði í boði í vikulegri dagskrá sem er verulega öflugt starf. Um er að ræða hannyrðahópa, spilahópa, hreyfihópa, sönghópa, leikhópa, myndlistarhópa, keramik og postulínshópa og venjulega kaffihópa. Svo ekki sé minnst á hin öflugu Opnu Hús og vinnu kvenfélagsins við kaffiveitingarnar. Einnig öflugar myndlistasýningar og ljósmyndasýningar. Mikil þátttaka var á 17. júni skemmtun sem haldin var hér í Grænumörkinni. Og afmælishátíð í nóvember og aðventuhátíðin í desember tókust afar vel og mikill fjöldi sótti þessar hátíðar. Vorum með aðventuhátíðina hér í Grænumörkinni og tókst bara vel. Grænamörkin í jólabúningi! Á bak við þetta öfluga starf eru milli 30 – 40 manns í nefndum og sem leiðbeinendur. Ég þakka þeim nefndarmönnum og námskeiðshöldurum sem hafa statfað fyrir okkur, því það er ekki sjálfgefið og legg ég til að við klöppum fyrir þessu öfluga fólki. Án þeirra væri þetta ekki mögulegt. Góð þátttaka hefur veið í hádegismatnum hér í Grænumörkinni. Vikulega eru um 180 máltíðir seldar og góð stemning hér í hádeginu.
Tekið var í notkun skráningakerfi sem heitir „Sportabler“ og var hannað til að auðvelda skipulag af ýmsu tagi.. Góða reynsla er af þessu þar sem það hefur verið tekið í notkun.. Kerfið einfaldar skipulag og samskipti.

Öldungaráð

Skipun og starfsemi öldungarráða eru bundin í lögum. Skipa skal öldungaráð. Í því sitja aðilar úr stjórnkerfi sveitarfélagsins og fulltrúar eldri borgara í sveitarfélaginu. Í öldungarráði Árborgar sitja fyrir hönd sveitarfélagsins, Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, formaður og Ellý Tómasdóttir. Fyrir Hsu er það Margrét Björk Ólafsdóttir og fyrir Eldri borgara félögin eru það Guðrún Þórarna Jónsdóttir, Selfossi, Jón Gunnar Gíslason, Eyrarbakka og Ragnhildur Jónsdóttir á Stokkseyri. Starfsmaður ráðsins er Sigþrúður Birta Jónsdóttir og fyrir eldri borgar í Árborg. Frá 2022 hefur Öldungaráðið haldið 7 fundi sem er afar jákvætt. Unnið er að því að fjölga fulltrúum frá FebSel þar sem fjöldi félaga eykst stöðugt. Reiknað er með að Öldungaráð komi hér á opið hús í maí.

Landsfundur á Reykjanesi // Formannafundur á Varmalandi

Landsamband Eldri Borgara hélt sinn aðalfund á Reykjanesi sl. vor. Þangað fórum við frá félögum eldri borgara í Árborg. Fundurinn var góður og má segja að aðalniðurstaða hans hafi verið að berjast gegn þeim skerðingum sem eldri borgarar verða fyrir í kerfinu. Næsti aðalfundur verður 29. apríl í Reykjavík. Funduar allra formanna LEB var haldinn á Varmalandi í september og var hann verulega góður og sterk samstaða myndaðist. Ákveðið var á þessum fundi að formaður og framkvæmdarstjóri færu og funduðu með öllum félögum á landinu og er þeirri hringferð að ljúka!

Félag Eldri Borgara á Selfossi

Markmið félagsins samkvæmt gildandi lögum þess eru fjögur: Í fyrsta lagi að vekja athygli og auka skilning almennings, ríkis og sveitarfélaga á þörfum eldri borgara. Í öðru lagi að stuðla að aukinni þjónustu. Í þriðja lagi að skipuleggja tómstunda- og félagsstarf meðal eldri borgara. Og í fjórða lagi að vinna að öðrum þeim málum, sem til hagsbóta teljast fyrir eldri borgara.
Að öllum þessum markmiðum er unnið alla daga ársins í gegnum öldungaráð og í samtölum við ráðamenn og með ályktunum til sveitarfélaga. Kynnt hafa verið helstu áhersluatriði eldra fólks eins og til dæmis mikilvægi þess að skipuleggja svæði með fjölbreyttum búsetuúrræðum, aukinni heilsuþjónustu heim og að festa öldungaráð í sessi svo það þjóni þeim tilgangi sem því er ætlað. Einnig að halda vakandi þeim möguleika að útbúa rými hér í Grænumörk 5 fyrir t.d. nudd, sjúkra- eða iðjuþjálfun. Þessu hefur verið komið á framfæri við fulltrúa félagsþjónustunnar. Ég tel að skipulag tómstunda- og félagsstarf meðal eldri borgara sé í góðu lagi og hefur vakið athygli víða.. Einnig er unnið aö aðgengis- og umferðarmálum sem oft koma upp þannig að félagið þarf að kalla eftir aðgerðum sveitarfélagsins. Við höfum sent áskoranir um að bæta lýsingu við gangbrautir og óskað eftir fleiri bekkjum við göngustíga og það hefur verið gert og ýmislegt fleira. Til viðbótar má nefna snjómokstur, umhverfismál, heilsufarsmál og ýmis erindi sem félagsfólk leitar með til stjórnarinnar sem gerir það sem hægt er til lausnar. Framundan er fundur stjórnar félagsins og öldungaráðs með bæjarstjórn Árborgar þar sem umræða verður tekin um þassi mál!

Kjaramál

Kjaramál eldra fólks hafa verið í umræðunni og hefur heldur hallað á þann hóp miðað við aðra sem semja sjálf um sín laun og kjör. Stjórn Félags eldri borgara á Selfossi hefur tekið undir ályktanir og áskoranir sem bornar hafa verið upp á vettvangi Landssambands eldri borgara. Leitað var til helstu samtaka launþega um að eiga samráð við fulltrúa Landssambandsins við gerð kjarasamninga með það að markmiði að koma því til leiðar og tryggja að lágmarkslífeyrir verði aldrei lægri en lágmarkslaun. Í kjarasamningum, sem þegar hafa verið gerðir, er aðkoma eftirlaunaþega ekki sýnileg, þrátt fyrir velvilja fulltrúa stóru stéttarfélaganna um að taka inn í samningaviðræðurnar bætt eftirlaun eldra fólks. Verkalýðshreyfingunni var bent á það að allir félagar þeirra í dag verða ellilífeyrisþegar á einhverjum tímapunkti.
Stjórn LEB birti nýlega viðbrögð við frumvarpi vetgna breytinga á almannatryggingakerfinu og studdi þær breytingar.
Um miðjan janúar 2026 var undirritaður nýr samningur milli Sveitarfélagsins Árborgar og Félags Eldri Borgara Selfossi. Tók hann við af samningi sem var undirritaður 2014. Þetta var mikið ánægjuefni og verður þessi samningur endurskoðaðaur árlega Meginefni hans er að félagið sjái um skipulag og framkvæmd tómstundastarfs fyrir eldri borgara á Selfossi. Félagið fær greiðslu fyrir og afnot af húsnæði. Ýmislegt hefur breyst frá þessum tíma, húsnæði hefur stækkað og umfang
félagsins vaxið.

LOKAORÐ

Öflugu starfsári á milli aðalfunda er lokið. Fyrir hönd stjórnarinnar vil ég þakka ykkur öllum fyrir gott ár og veit að framtíðin er björt. Þó vil ég benda á að félög mega aldrei staðna. Við verðum að vera vakandi fyrir nýjum áskorunum og þora að breyta hlutum og bæta við nýjum þáttum í starfsemina. Við verðum að gera félagið spennandi fyrir alla aldurshópa eldri borgara. Við vitum að aldursbilið getur verið allt að 35 – 40 ár í félaginu þó svo að ríkjandi aldur í félaginu sé á bilinu 70 – 85 ára. Við verðum að leita leiða til að yngri heldri borgarar komi á dagskrá hjá okkur og hjálpi okkur að efla starfið. Við verðum að efla tengsl á millI félaga eldri borgara, efla samræðuna og allar tengingar. Ég veit að okkur tekst þetta og er bjartsýnn á framtíðina.
Takk fyrir

4. Reikningar félagsins. Elín Jónsdóttir lagði fram reikninga félagsins.

5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins. Reikningar félagsins bornir upp til samþykktar. Reikningar samþykktir.

6. Tillaga um óbreytt árgjald kr. 4000 og var það samþykkt.
¬¬¬¬¬¬¬
7. Þá var komið að skýrslum nefnda félagsins. Þær voru bæði fluttar af nefndarmönnum eða formanni. Fara fram á skýran og stuttorðan stíl.

Fornbókmenntir Halldór Páll Halldórsson // Hannes Stefánsson

Í vetur hafa tvær sögur verið á dagskrá. Tengjast þær báðar Húnaþingi. Fyrir jól var lokið við að lesa Bandamanna sögu og síðan var tekið til við Heiðarvíga sögu. Senn kemur að hápunkti hennar og sögulokum. Eftir það verður annað hvort byrjað á Finnboga sögu ramma eða við lesum eina til tvær styttri sögur. Hópurinn hittist einu sinni í viku, klukkutíma í senn frá hálf tíu til hálf ellefu á mánudögum. Gjald fyrir veturinn er 1500 kr á mann + kaffipeningur. Hvern mánudag koma 50 -55 manns. Þeir sem vilja, koma að hljóðnemanum og lesa einn kafla fyrir hópinn. Þannig er hver saga gjörlesin. Eftir hvern kafla er lestrarhlé, þar sem sagan er krufin og rædd. Handleiðslu með slíku hafa þau Hannes Stefánsson, Katrín Tryggvadóttir og Páll Skúlason. Kaffikonur eru Guðmunda Auðunsdóttir og Svala Halldórsdóttir.
4. – 5. maí verður farið í tveggja daga ferð á söguslóðir í Húnaþingi. Um 70 manns eru skráð í ferðina, lestrarhópsfélagar og makar.

Árshátíðarnefnd Ólafur Bachmann

Afmælis- og árshátið Félags Eldri Borgara á Selfossi var haldin 6. nóvember á Hótel Selfoss. Hátíðin tókst afar vel, góður matur, góð sekmmtiatriði sem okkar jákvæði formaður Magnús J. stjórnaði af stakri snilld. Hörpukórinn söng afar vel undir stjórn Stefáns Þorleifssonar, Leiklestrarhópurnn Leikhópurinn Okkar var með skemmtilegan leikþátt undir stjórn Sigríðar K. og Magnúsar J. Svo kom Magnús Kjartan og skemmti okkur með söng sem var vel tekið. Að lokum tók Jón Bjarnason við og það var dansað á fullu allt til loka. Jón tilkynnti að þetta væri hans síðasta kikk og verður hans sárt saknað. Það verður þrautin þyngri að finna mann í hans stað. Og við eigum eftir að sakna hans mikið. Bragi Bjarnason, bæjarstjóri flutti létt ávarp. Í árshátíðarnefnd eru Guðbjörg Sigurðardóttir, formaður, Guðrún Guðnadóttir og Ólafur Bachmann, enn hann hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram og þðkkum við honum fyrir skemmtilega samvinnu. Að lokum sjáumst við hress og kát á næstu árshátíð FebSel og skemmtum okkur saman.
Lifið heil! Guðbjörg, Guðrún og Ólafur.
Leiklestrarnefnd Magnús J. Magnússon
Fyrir honum fara Magnús J. Magnússon og Sigríður Karlsdóttir. Leiklestrarhópurinn „Leikhópurinn okkar“ inniheldur 16 öfluga félagsmenn. Þessi hópur hefur í grunninn verið með síðan haustið 2021.
Veturinn 2025 – 2026 var leiklesturinn á mánudögum frá kl. 13.30 til 14.30. Vinnufyrirkomulag var svipað. Lásum Passíusálma á föstudaginn langa í kirkjunni og það var verulega áhugavert. Leiklásum atriði á Opnu Húsi í maí og var því vel tekið. Við vissum að það voru hugmyndir um að fá okkur til að koma fram á árshátið félagsins og aðventukvöldi sem við og gerðum. Á árs- og afmælishátíð félagsins sýndum við léttan og stuttan einþáttung sem byggði á sögu félagsins frá 1977 og á aðventuhátíðinni var lesin góð jólasaga. Nú er verið að vinna að vorverkefninu.
Þetta er öflugur hópur og verkefni vorsins eru í umræðu.
Magnús J. Magnússon // Sigríður Karlsdóttir
Leikhúsnefnd Jóna S. Sigurbjartsdóttir
Skýrsla leikhúsnefndar Árið 2025
Leikhúsnend Skipa: Jóna S. Sigurbjartsdóttir, Guðfinna Ólafsdóttir, María Busk og Nanna Þorláksdóttir.
Nendin fundaði 15. sept.og ræddi vítt og breytt um fyrikomulag, ferða og hvað ætti að fara og sjá. Eins var rætt um að auglýsa opinn fund fyrir áhugasama um leikhúsferðir.
Sá fundur var haldinn 4. október og var bæði gagnlegur og góður en fáir mættu utan leikhúsnefndar og formanns félagsins.
Sefnt skildi að því að fara eina leikhúsferð fyrir áramót og eina eftir áramót auk Vínartónleika. En jafnframt að skoða allar hugmyndir sem nefndinni bærust.
Á vorönn var farið að sjá sýninguna “Þetta er Laddi” í Borgarleikhúsinu. 30 manns fór á þessa sýningu.
16. miðar fengust á sýninguna “Tóm Hamingja “ í Borgarleikhúsinu í október engin þáttaka var í þeirri ferð, og féll hún þá að sjálfsögðu niður.
50 manns þáði boð Sinfóníuhljómsveitarinnar á ”generalprufu” Vínartónleika í Hörpu 8. janúar. Þessi boðsferð nýtur alltaf mikilla vinsælda, og komast oftast færri að en vilja.
Eini kosnaður þátttakenda er rútufargjaldið, mikilvægt er að fólk láti vita ef það hyggst ekki nota miðana sína, svo aðrir geti notið, eins er slæmt ef margir falla út eftir að rútufargjald (2000) hefur verið gefið út, því þá fellur sá kostnaður á félagið.
Nú stendur fyrir dyrum ferð á Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu þann 22 febr. n.k, 43 hafa keypt miða á þá sýningu.
Á þá sýningu er fargjaldið kr. 3000, en það fer bæði eftir fjölda og lengd ferðar hver upphæðin er.
Við í nefndinni vijum hvetja fólk til að skoða vel áhugaleiksýningar í nærsveitum og safnast saman í bíla til að sækja þær. Oft er hægt að fá hópafslátt ef 10-15 eru saman í hóp. En sá fjöldi er varla nægur til að borgi sig að taka rútu.
Fyrir hönd leikhúsnenfndar
Jóna S. Sigurbjartsdóttir

Ferðanefnd Magnús J. Magnússon
Skýrsla Ferðanefndar FebSel 2025
Fyrsta ferð sumarsins var farin miðvikudaginn 18. júní
Leiðsögumaður í þeirri ferð var Páll M.Skúlason sem er öllum hnútum kunnugur í Laugarási, þangað sem för okkar var heitið. Fræddi hann okkur um frumbyggjana sem voru brautryðjendur í grænmetisræktun um miðja síðustu öld og hvernig var að alast upp í litlu sveitaþorpi þar sem nýsköpun var í fullum vexti og átti eftir að breyta matarvenjum landsmanna svo um munaði. Farið var í garðyrkjustöðina Hveratún þar sem bróðir Páls og hans fjölskylda ræður ríkjum og komið við í dýragarðinum í Slakka. Síðan ókum við að Laugarvatni þar sem við borðuðum hádegisverð í Héraðsskólanum. Næst lá leið okkar í Hrunamannahrepp til þess að heimsækja Ullarverið á Ísabakka sem þá hafði nýverið hafið störf. Bústýrurnar þar, Margrét og Elín Jóna. fræddu okkur um starfsemina og buðu upp á kaffisopa.
Ferðin var ánæguleg í alla staði. Veðrið var þokkalegt, súld fyrripartinn en svo birti til eftir hádegið.
Önnur ferð sumarsins var farin miðvikudaginn 16. júlí
Ekið var austur yfir Þjórsá að Kálfholti í Ásahreppi þar sem Jónas Jónsson bóndi tók á móti hópnum og leiðsögn í ferðinni. Hann byrjaði á að sýna okkur Kálfholtsskirkju og sagði sögu hennar og síðan lá leiðin um Ásahreppinn að Ásmundarstöðum þar sem Sigurður Óskar, rekstrarstjóri kjúklingabúsins, kom í bílinn og sagði frá starfseminni þar. Hádegisverður var snæddur á Stracta Hóteli á Hellu. Eftir að hafa áð á Hellu lá leið okkar í Þykkvabæinn. Þar hittum við óvænt kartöflubændur sem sátu úti í sólinni og söfnuðu kröftum fyrir kartöfluupptökutörnina sem beið þeirra. Þau sögðust gjarnan vilja taka á móti okkur ef við heimsæktum Þykkvabæinn aftur. Næst lá leið okkar að Hárlaugsstöðum í Ásahreppi. Þar búa Sigurlaug og Guðmundur foreldrar Heklu listakonu sem rekur Heklaíslandi. Hjónin eru fyrrverandi kennarar á Laugalandi og stunduðu loðdýrarækt á Hárlaugsstöðum um tíma. Þau tóku á móti hópnum með myndarlegum kaffiveitingum sem gerð voru góð skil innan og utan dyra. Ferðalangar gátu svo verslað listmuni eftir Heklu dóttur þeirra sem og ýmisskonar ullarband, m.a. af feldfé sem þau ræktuðu um hríð. Veðrið lék við okkur allan daginn, sóla og blíða.
„Einu sinni á ágústkvöldi“ 20. ágúst
Af tilefninu „Einu sinni á ágústkvöldi“ höfum við tvisvar verið í Árnesi í Gnúpverjahreppi og átt þar ánægjulega kvöldstund. Margir hafa komið með ferðahýsin sín og gist en aðrir haldið heim eftir samveru kvöldsins. Að þessu sinni var ákveðið að breyta til um staðsetningu og varð Flóinn fyrir valinu. Stefndum við því niður í Villingaholtshrepp að Vatnsholti. Þessum samkomum hefur verið vel tekið af félagsmönnum. Þátttakendum fjölgað á milli ára og í þetta sinn telst okkur til að um 120 manns hafi notið „dulúðar sem enginn veit“. Helgi Hermanns., Kristján og Úlfhildur léku fyrir dansi og buðu upp á „dinner músík“ af hæstu gæðum. Sönghópurinn Syngjandi sex sungu nokkur lög milli þess sem vel valdir brandarar fengu að fljúga frá þeim sem gestir kunnu vel að meta. Sönghópurinn samanstendur af 5 konum sem gaman hafa af því að syngja saman og markhópurinn eru eldriborgarasamverur.
Alls voru reist u.þ.b. 30 ferðahýsi í Vatnsholti og matnum þar gerð góð skil. Veðrið var með eindæmum gott og ekki annað að heyra en að félagsmenn Febsel væru sáttir við staðsetningu ágústskvöldsins

Haustferð, Guðmundar Tyrfingssonarferðin, var farin miðvikudaginn 10. september
Að þessu sinni var farið í Mosfellssveit og Grafning undir leiðsögn Kristjáns Einarssonar sem uppalinn er í Mosfellssveit. Fræddi hann okkur um uppvöxt sinn í sveitinni og mannlíf þess tíma. Víða má sjá minjar hernámsáranna og Laxnes gleymist ekki. Kristján bryddaði upp á nýjung í leiðsögn með tónlist sem tengdist sveitinni s.s. með Diddú o.fl. Á ION-hóteli á Nesjavöllum biðu hópsins kaffiveitingar. Síðan var ekið heim – í grenjandi rigningu – en fram að því hafði veðrið leikið við okkur.
Guðmundur Tyrfingsson hefur um árabil styrkt FebSel með því að keyra gjaldfrítt þessa ferð og fær hann og hans fólk kærar þakkir fyrir.
Við í ferðanefnd Febsel viljum þakka ferðafélögum fyrir skemmtilega og gefandi nærveru í ferðum okkar. Við höfum kembt Suðurland að mestu en svo skemmtilega vill til að alltaf er einhver sem ekki hefur komið á viðkomandi stað og svo er alltaf eitthvað nýtt að sjá.
Við hlökkum til samverunnar á komandi sumri.
Með virðingu og þökk
Ingibjörg – Vigdís og Helgi.
Staðan á setu okkar í ferðanefnd er þannig:
Helgi Hermannsson 2024-2027
Ingibjörg Stefánsdóttir 2024-2027
Vigdís Guðmundsdóttir 2023 -2026

Viðburðarstjórn Ólafur Sigurðsson.
SKÝRSLA VIÐBURÐARSTJÓRNAR 2025 – 2026
Viðburðarstjórn undirbýr dagskrá fyrir Opið hús í Grænumörk flesta fimmtudaga yfir vetrartímann.Í stjórninni þetta starfsár hafa þessir lagt hönd á plóg: Óli, Unnur,Páll,Ingibjörg, Eva, Sigrún og Ísleifur.
Frá aðalfundi FEBSEL í febrúar og fram í maí voru 8 Opin hús.Gísli Skúlason fjallaði um Langanesið í máli og myndum., Eiríkur Orri Guðmundsson,læknir,fræddi gesti um blöðruhálskirtilinn og fl. Soffía Sveinsdóttir,nýr skólameistari FSU kynnti sig og skólann, Leikhópurinn okkar tróð upp við góðar undirtektir, Harmonikkusveit Suðurlands og Söngnemendur úr Tónlistaskólanum glöddu gesti. Hlynur Snær trúbador söng okkur svo inn í vorið 15. maí .
Vetrarstarfið hófst 26. september. Síðan þá hafa verið 15 Opin hús með fróðleik og skemmtan.
Bjarni Harðarson kynnti nýja bók sína, Þorsteinn Ólafsson sagði frá ferð um suðurhluta Afríku, Fjóla Einarsdóttir kynnti starfsemi Stróks, virknimiðstöðvar,Guðmunda Ólafsdóttir í Héraðsskjalasafninu fjallaði um Skjölin hennar ömmu, Páll Skúlason sagði frá ferð til Dubai. Ellert Borgar Þorvaldsson og Aníta skemmtu með sögum og söng, Dísa í Skálanum sagði sögur úr Tryggvaskála og Magnús formaður og Bergsveinn sögðu frá Færeyjaferð. Söngnemar frá Tónlistarskólanum skemmtu okkur á litlu jólunum.
Eftir áramót hófst starfið með vísnaspjalli þar sem Unnur Halldórsdóttir og Gísli Skúlason könkuðust á. Bylgja og Fanney kynntu þjónustuna í Árbliki og Vinaminni, þar sem aldraðir og heilabilaðir una sér á daginn. Dr. Árni Bragason fjallaði um fæðuöryggi á óvissutímum, Linda Ásdísardóttir Safnafræðingur sagði frá ferðum til Grænlands og Trausti Hjálmarsson fjallaði um landbúnað sem menningarverðmæti.
Yfirleitt mæta 80 – 90 heldriborgarar í Opið hús, en nokkrum sinnum hafa þeir verið yfir 120 talsins, einkum ef fjallað er um eitthvað sem tengist heimahögum. Kvenfélag Selfoss framreiðir kaffi og meðlæti og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir svo og öllum þeim sem hafa komið og frætt okkur og skemmt.
Fram á vorið eru skipulögð 8 Opin hús með fjölbreyttu efni, það síðasta hinn 7. Maí.
Með kveðju! // Viðburðarstjórn.

Öndvegisbókmenntir Magnús J. Magnússon
Skýrsla 2026
Öndvegisbókaklúbburinn var stofnaður haustið 2014.
Þær sem hafa umsjón með öndvegisbókalestrinum nú eru: Jóna S. Sigurbjartsdóttir, Helga Guðrún Guðmundsdóttir og Guðrún Þóranna Jónsdóttir.
Á síðasta ári 2025 voru lesnar tvær bækur. Á vorönn var lesin bókin Karítas án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur og í haust var lesin bókin Alla mína stelpuspilatíð eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur. Eftir áramót var valin bókin Kona þriggja eyja – ævisaga Ásu Guðmundsdóttur Wright. Höfundur þeirra bókar er Inga Dóra Björnsdóttir mannfræðingur.
Hefð hefur verið fyrir því að fara í eina ferð að vori og þá gjarnan á söguslóðir bókar sem lesin hefur verið þann vetur. Nú hefur verið ákveðið að heimsækja Snæfellsnesið í vor en Ása Guðmundsdóttir Wrigth ólst upp á Stykkishólmi frá 9 ára aldri en hún er fædd hér á Suðurlandi í Laugardælum 1892 þar sem faðir hennar var læknir og bóndi ásamt því að vera sá síðasti ferjubóndinn á Laugardælum.
Við höfum yfirleitt hist á aðventunni, borðað saman og átt okkar Litlu jól. Síðastliðin desember hittumst við í Selinu við Engjaveg og pöntuðum jólahlaðborð frá Byrja veitingastað við hliðina á Krónunni.
Það er frjáls tími annan miðvikudag í hverjum mánuði þar sem ýmislegt er tekið fyrir eins og uppáhaldsljóð klúbbfélaga og höfundar hafa mætt og spjallað við hópinn. Nú hefur verið ákveðið að fara á bókamarkað í Garðheimum í frjálsa tímum í mars og hugsum við gott til og virðist verða góð þátttaka.
Fundirnir eru vel sóttir, iðulega um 40 manns sem mæta á
miðvikudagsmorgnum en í bókaklúbbinn eru skráðir 55.

Ljósmyndaklúbbur Magnús J. Magnússon

„LjósÁr“ ljósmyndaklúbbur FEBS
Ársskýrsla 2025.

Á árinu 2024 voru 15 reglulegir fundir haldnir í ljósmyndaklúbbnum þ.e. fundað var að jafnaði hálfsmánaðarlega yfir vetrarmánuðina í Grænumörk.
Að venju kom félagar saman utan Grænumarkar á árinu. Þeir fóru í ljósmyndaferð saman og hittust á kaffihúsum og einkaheimilum. Fundirnir voru vel sóttir af félögum og var starfið gróskumikið og reyndi töluvert á hæfileika og getu félagsmanna. Félagar í LjósÁri eru með ljósmyndir til sýnis á vegg í Grænumörk og var skipt um myndir á sýningunni þrisvar sinnum á árinu. Starfið 2026 fer vel af stað og er áætlað að halda fundi með sama hætti og s.l. ár þ.e á hálfsmánaðar fresti.

Selfossi febrúar 2026
f.h. „LjósÁr“
Eiður Haralds Eiðsson

Hörpukórinn Magnús J. Magnússon
Skýrsla Hörpukórsins 2025 – 2026
Hörpukórinn hóf æfingar þetta starfsár 1. október. Æft er einu sinni í viku á miðvikudögum kl. 15:30 – 17:15. Aðalfundur er haldinn seinnihluta október ár hvert og var nú 29. október. Sungið var á afmælishátíð FebSel og kórsins 6. nóvember og á aðventuhátíð 4. des og var farið í jólafrí eftir það. Við hittumst samt 16. des og borðuðum saman jólamáltíð.
Æfingar hófust aftur 7. janúar.
Hringur, kór eldri borgara í Rangárþingi kemur til okkar í Grænumörk, 4. mars næstkomandi í boði Hörpukórsins en fyrir covid var samstarf á milli þessara tveggja kóra.
Við munum heimsækja Móberg og Sólvelli 22. mars, Fossheima og Ljósheima 25. mars og syngja fyrir fólkið. Til stendur að vera með bingó og kökubasar 1. apríl og verður það auglýst síðar.
Vortónleikar verða í Selfosskirkju 3. maí, síðan förum við til Keflavíkur 9. maí til að taka þátt í 5-kóramóti sem er árlegur viðburður.
Eldri borgara messa er á uppstigningadag kl. 11:00 þar sem við syngjum og er þar með lokið starfsemi ársins.
Hörpukórinn telur 50 félaga og söngstjóri er Stefán Þorleifsson
Rúnar Jökull formaður.
Íþróttanefnd Magnús J. Magnússon
Góð starfsemi var í íþróttum. Mikil þáttaka á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum í íþróttahöllinni okkar. Góöður hóður spilar Boccia á þriðjudögum og föstudögum. Góð ákvörðun að færa þetta í Mörkina Spilað á tveimur völlum og gengur vel. Góður hópur einnig í snóker. Síðan nokkrir gönguhópar.
Kínaskákklúbburinn Jóker Magnús J. Magnússon
Starfsemi okkar hófst ca. viku af janúar. Spilað er á 4 – 8 borðum vikulega alla miðvikudaga. Ákveðið var að halda áfram spilamennsku í sumar þrátt fyrir minni aðsókn.Það eru talsvert margir sem vilja njóta góðrar samveru sem soilamennskan er. Í júlí fórum við 10 á Hvammstanga og spiluðum á móti sem er kallað heimsmeistaramót en það er haldið í vikunni Eldur í húnaþingi. Í ágúst fóru 12 félagar á Akureyri og spiluðum þar á Landsmóti. Áfram héldum við spilamennskunni og hefur fjölgað frá því að stafsemin hófst en þá var aðeins spilað á 3 borðum. Við hvetjum fólk til þátttöku í þessu frábæra spili
Kaffihlé

8. Kosningar.
Helga Guðrún Guðmundsdóttir, formaður kjörnefndar og Halldór Páll.fundarstjóri lögðu fram tillögur kjörnefndar.

Stjórnarkjör:

Kosning gjaldkera.
Tillaga um Margréti Jónsdóttur, sem situr í aðalstjórn sem ritari í embætti gjaldkeri til tveggja ára.
Engar móttillögur komu fram og var klappað fyrir Margréti.
Kosning tveggja í aðalstjórn
Ólafia Ingólfsdóttir, varaformaður sem hefur setið 3 kjörtímabil og Elín Jónsdóttir láta af störfum.
Tillaga um Jónu S. Sigurbjartsdóttur til tveggja ára og Brynhildi Geirsdóttur til eins árs.
Engar móttillögur komu fram og var klappað fyrir þeim sem kosnir voru
Kosning tveggja í varastjórn til eins árs.
Ólafur Sigurðsson og Ólafur Bachmann sem hafa setið 3 kjörtímabil láta af störfum.
Tillaga um Gils Einarsson í varastjórn til tveggja ára og Maríu Hauksdóttur í varastjórn til eins árs,
Engar móttilögur og klappað fyrir þeim sem kosnir voru.

Þeir framhjóðendur sem voru viðstaddir stigu í pontu og sögðu lítilega frá sér.

Skoðunarmenn reikninga.

Alda Alfreðsdóttir situr til 2027.
Tillaga um Guðrún Guðnadóttir sem var kosin til tveggja ára.

Kjörnefnd

Elsa Helga Sveinsdóttir, Gísli Geirsson og Helga Guðrún Guðmundsdóttir eru enn við völd.

Fulltrúar FebSel að landsfund LEB. Stjórn falið að skipa fulltrúa.

9. Önnur Mál
Formaður bað um orðið. Byrjaði á að þakka fráfarandi stjórn fyrir sín störf. Hann lagði fram 1 ályktun til umræðu og var hún samþykkt.
Ályktun
Ályktun aðalfundar Félags eldri borgara Selfossi haldinn 19. febrúar 2026.

Aðalfundur Félags eldri borgara á Selfossi, FEBSEL, haldinn í Mörk Austurvegi 51 þann 19. febrúar 2026, leggur áherslu á að vegna fyrirsjáanlegrar fjölgunar eldra fólks í sveitarfélaginu á næstu árum er brýnt að:
• Sveitarfélagið Árborg hlutist til um að í aðal- og deiliskipulagi verði rými fyrir félagslegar- og almennar leiguíbúðir fyrir eldra fólk.
• Auka búsetukosti eins og lífsgæðakjörnum þar sem heimili og þjónusta eldra fólks er tengd saman og með það að markmiði að auka öryggi og lífsgæði þessa hóps.
• Huga þarf að stækkun húsnæðis/rými fyrir ört vaxandi félagsstarf vegna mikillar fjölgunar eldra fólks í FEBSEL.
• Hafa stjórn FEBSEL með í ráðum við uppbygginguna vegna hugsanlegrar nýtingar húsnæðis til félagsmála vegna fjölgunar félagsmanna.
————————————————————————————-
MJM biður stafsmann sinn að fara og ná í blóm sem hann ætlar að afhenta.
MJM kallaði á Jón Inga OS sýndi verkið.
Jón Ingi Sigurmundsson færir félaginu málverk að gjöf, hann sagði að það væri kannski að bera það í bakkafullan lækinn að koma með málverk inní þennan sal. Jón Ingi lýsti verkinu en hún er fá Þingvöllum verkið heytir Haust við Þingvelli. MJM afhenti honum rós fyrir og bað hann að afhenda konunnin sinni.
MJM sagði að ekki væri sjálfgefið að fá fólk til starfa bað hann ÓS. EJ og Ób að koma og taka við blómum frá félaginu. Myndataka. Fráfarandi fengu gott klapp.
ÓS bað um orðið. Byrjaði á að óska nýrri stjórn velfarnaðar í starfi, hann sagðist vera búin að vera í starfi stjórna í 6 ár fyrst mað Guðfinnu síðan Þorgrími Óla og núna síðast MJM. Hann sagði að þessi ár hefðu verið viðburparríka og gefandi. Mesta ánægðan sagði hann vera að halda opin hús en hann situr einnig í viðburðarstjórn sem hann ætlar að hætta í vor.
Bragi bæjarstjóri bað um orðið. Hann þakkað fyrir að hann og Kjartann fengu að sitja fundinn. Þakkið gott starf og hann þakkaði einnig fyrir hvað skýr skilaboð kæmu frá félaginu og vill hann vera skýr á móti. Hann sagði að plön væru með framtíðina og vill áframhaldandi gott samstarf.
Kjartann tók orðið og leiðrétti bæjarstjórann að hann væri félagi í FEBSEL.
Elín Jónsdóttir, Ólafía Ingólfsdóttir. Ólafur Bachmann og Ólafur Sigurðsson kvödd með fallegurm orðum og blómvöndum
10. Fundarstjóri lætur af störfum og formaður þakkar starfsmönnum aðalfundar fyrir störf á aðalfundi og slítur fundi
MJM slítur fundi þakkar starfsmönnum fundarins og afhendir rósir.
Sagðist hafa gleymt einum hópi en það eru Karlarnir í Uppsölum gott starf er hjá þeim.

Fundi slitið kl. 15.40

____________________________ ___________________________
Guðrún Guðnadóttir Margrét Jónsdóttir

Eldri fundir

Aðalfundur Félags eldri borgara Selfossi 2025

AÐALFUNDUR FÉLAGS ELDRI BORGARA Á SELFOSSI 20.02.25 FUNDARGERÐ   Magnús J. Magnússson setur fund og leggur til að Guðmundur Kr. verði fundarstjóri og Guðrún Guðnadóttir og Margrét Jónsdóttir yrðu ritarar. Var það samþykkt.   Guðmundur tekur við fundarstjórn og...

Aðalfundur Félags eldri borgara Selfossi

AÐALFUNDUR FÉLAGS ELDRI BORGARA Á SELFOSSI 22.02.24 FUNDARGERÐ Fundarsetning Formaður félagsins setti fund og bauð alla velkomna. Hann lagði til að Jóna S. Sigurbjartsdóttir yrði fundarstjóri og Örlygur Karlsson og Margrét Jónsdóttir yrðu ritarar. Var það samþykkt....

Fundargerð aðalfundar Febsel 2023

Fundargerð aðalfundar FEBSEL 2023  22.febrúar 2023 Fundargerð aðalfundar FEBSEL 2023. Aðalfundur Félags eldriborgara Selfossi, haldinn 23. febrúar 2023 kl. 14:00 í félagsmiðstöðinni Mörk, Selfossi.   Fundur settur. Þorgrímur Óli Sigurðsson formaður setti fundinn og...

Aðalfundur Félags eldri borgara Selfossi

Aðalfundur Félags eldri borgara Selfossi  24.mars 2022 Dagskrá: Fundarsetning, kosning fundarstjóra og fundarritara. Formaður gerir tillögu um að Guðfinna Ólafsdóttir verði fundarstjóri og að ritarar verði Jóna S. Sigurbjartsdóttir og Örlygur Karlsson. Skýrsla...