Fundargerð stjórnar Félags Eldri Borgara
Selfossi (08/2026)
3. stjórnarfundur föstudaginn 20.03.2026 kl.09.30 – 12.00
Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Jóna S. Sigurbjartsdóttir
(JSS), Brynhildur Geirsdóttir ritari, (BG), Margrét Jónsdóttir (MJ) gjaldkeri
, Valdimar Bragason (VB) meðstjórnandi, Gils Einarsson (GE) og María
Hauksdóttir (MH
Einnig mættu Gunnar Þórðarson, Heiðar Alexandersson og Valdimar
Karlsson frá íþróttanefnd Guðrún Guðnadóttir frá skemmtinefnd,Eva
Garðarsdóttir , Óafur Sigurðsson ,Ingibjörg Eiríksdóttir, Ísleifur
Jakobsson og Sigrún Óskarsdóttir frá viðburðanefnd og Ingibjörg
Stefánsdóttir frá ferðanefnd.
Fundur með nefndum kl. 09.30 – 10.30 í S1
Viðburðastjórn, Ferðanefnd, Leiklestrarnefnd, Íþróttanefnd,
Leikhúsnefnd,
1. Magnús setti fundinn kl. 09.30 og byrjaði á íþróttanefnd og
Magnús sagði frá pílukasti sem verður væntanlega í húsinu, nokkrar
umræður urðu um það hvar væri best að staðsetja það. Íþróttanefnd
falið að finna út úr því. Nefndar menn kváðust allir verða áfram í
nefndinni. Magnús spurði hvort íþróttanefndinni dytti eitthvað anað í
hug og Heiðar sagði frá grjónapúðum sem er sniðug fyrir eldri
borgara. Ólafur spurði um pútt mottu og Magnús sagðist vera að
skoða það. Umræður um að koma upp pútt velli á sýslumannstúninu
sem hefur áður verið í umræðu og Magnús ætlar að kanna hvar það
mál er statt. Rætt var um að sniðugt væri að koma upp íþróttatækjum
og bekkjum við gönguleiðir.
Ólafur sagði að þetta hefði verið skoðað og væri meira mál en það liti
út fyrir að vera. Bekkir og tæki þyrftu að vera vottað og fara eftir
allskonar reglugerðum.
Næst kom að skemmtinefndinni, Guðrún sagði að Guðbjörg, sem er
með henni í nefndinni væri í útlöndum en væri væntanleg
fljótlega. Þær ætla að tala saman þegar hún kemur heim hún sagði
að Ólafur ætli að hætta í nefndinni. Árshátíðin verður 12. nóvember.
Rætt var að hafa aðventuhátíðina hér í Grænumörk. Magnús sagði að
þær skyldu finna einn í viðbót í nefndina í staðin fyrir Ólaf Back.
Næst var rætt við viðburðarnefnd og spurt hvort það væru breytingar
á fólki. Ólafur Sig. sagðist ætla að hætta eftir sex ára veru. Hann
taldi það nægan tíma þetta væri mikið starf, hann sagði að það væri
búið að skipuleggja alla viðburði til vors. Ólafur sagði okkur hvað væri
á döfinni á næstunni þ.e. 26. mars á Theódór Frans að koma og vera
með smá innlegg, í apríl verður kynning á
væntanlegu öryggisfangelsi á Eyrabakka, 16. apríl kemur Andrea
Jóns, poppari frá Selfossi og segir frá einhverju skemmtilegu, 30. apríl
kemur Siggi Bogi og verður með eitthvert innlegg, 7. maí er
fyrirhugað brandarakaffi og gamansögur allir mega taka þátt, 14. maí,
Uppstigningardag er messa. Rætt um allt hefði gengið vel í vetur, en
það þyrfti alltaf að vera til plan B ef einhver viðburður klikkar. Ólafur
sagði að það vantaði betri aðbúnað í salinn það þyrfti að vera
skjávarpar í báðum sölum og hljóðkerfið væri alls ekki í lagi. Magnús
sagði að þetta væri í skoðun og yrði vonandi orðið betra næsta vetur.
Magnús spurði hvort það yrði breyting á nefndarfólki og Ólafur beðin
að skoða málið að halda áfram. Ólafur ætlar að hugsa málið.
Næst var rætt við ferðanefnd. Ingibjörg Stefánsdóttir sagði það væri
búið að ákveða dagsetningar, fyrsta ferð verður 16. júní næsta 14.
júlí, það verður farið í Þjórsárdalinn og í Rangárvallasýslu en ekki var
búið að ákveða hvor yrði á undan. 17. ágúst verður útilega í
Vatnsholti eins og í fyrra. Síðasta ferðin er svo 9. September, það er
ferð sem Guðmundur Tyrfingsson býður fría keyrslu þá stendur til að
fara niðrá strönd og enda í kaffihlaðborði í Vatnsholti. Ingibjörg sagði
að þessar ferðir hefðu gengið mjög vel og vel sóttar.
Magnús spurði hvort það mætti ekki hafa tvær rútur í G.T. ferðina í
september, Ingibjörg taldi að það gæti gengið og Vatnsholt gæti alveg
tekið á móti svo stórum hópi. Magnús sagði að það væri gott að allir
kæmust með sem vildu, sérstaklega í þessa ferð. Ingibjörg sagði að
það væri ekki alltaf gott að finna stað sem getur tekið á móti fólki ef
hópurinn væri stór og þeim fyndist ágætt að miða við eina rútu. Hún
sagði að það hefði alveg gengið vel en það væri mjög slæmt þegar
fólk skráir sig í ferðina og mætir svo ekki, þau hefðu þurft að rukka
fólk fyrir veitingar sem var búið að panta fyrir þau. Magnús spurði
hvort það yrði breyting á nefndinni og Ingibjörg sagði að þau Helgi
væru áfram en Vigdís ætti að hætta núna en þau eiga eftir að athuga
hvort hún héldi áfram.
Magnús sagði frá leiklestrarhópnum sem er að æfa leikrit sem
heitir Rommý, þau lesa líka passíusálmana í kirkjunni á föstudaginn
langa.
Leikhúsnefnd ætlar að segja frá starfinu á næsta fundi.
Þegar allar nefndir höfðu sagt frá sínu starfi viku þau af fundi og
stjórnin hélt áfram með stjórnarfundinn.
2. Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt eftir eina
athugasemd.
3. Afgreiðsla mála frá síðasta fundi: MJ sagði að hann væri búin að
tala við Begga varðandi Færeyjaferð vorið 2027 og það er komin
þriggja manna nefnd sem er byrjuð að starfa með Begga, í nefndinni
eru Elín fyrrverandi stjórnarmaður og Valdi Braga.
4. Niðurstöður fundar með nefndum: Allir ánægðir með það
5. Vor í Árborg 23.04 – 26.04 // Lista
og menningarhátíð FEBSEL: Rætt um að það yrði sýning á
handverki sem eldri borgarar hafa verið að vinna að í vetur. MJ vill
hvetja fólk að taka börnin með á sýninguna þar sem yfirskrift
hátíðarinnar er barnamenning. Stjórnin mætir kl. 11. til að stilla
upp, sýningin hefst kl. 13. Rætt um hvort það yrði boðið uppá vöfflur
og kaffi og hvernig það yrði haft.
6. Hvað er fram undan: Ball í Félagslundi 10. apríl húsið
opnar kl.19.00 og er til 22.30. Rætt um hvernig tegund af músík væri
góð og að fara og skoða aðstæður. Maríu falið að tala við hljómsveit
sem er hér í Flóanum og kanna hvort þeir gætu tekið þetta að sér.
Talað var um að stilla verði í hóf. Rætt um að fá línudansarahóp til að
koma með smá sýningu. Magnús talaði um að við skoðuðum
heimasíðuna og kæmu með athugasemdir og svo ætlar hann að láta
þann sem sér um heimasíðuna koma því inn. Rætt var um hvenær
gamla stjórnin yrði kvödd og ákveðið að hafa það eftir páska trúlega
14. apríl.
7. Margrét gjaldkeri sagðist vera í sambandi við fyrirtækið Reglu
varðandi bókhald og innheimtu á félagsgjöldum. Hún sagðist verða
komin með áætlum á næsta fundi.
8. Önnur mál: Margrét sagði að það þyrfti að bókast að það hefði
verið samþykkt beiðni Viðburðarstjórnar á stjórnarfundi að það yrði
boðið uppá hvítvín á söngstundinni í opnu húsi 12. apríl sl. Það sem
eftir var af því var síðan á boðstólnum á dansæfingunni 18. mars.
Margrét sagði frá skrýtnu símtali frá konu sem vildi fá miða á
árshátíðina endurgreiddan og nota hann sem bingóvinning á næstu
árshátíð. Magnús ætlar að tala við konuna . Jóna sagðist hafa hitt
Hafnfirðinga sem sögðust þurfa að fara til Kanarí til að fá skemmtilegt
félagslíf. Jóna sagði þeim að það væri gullandi félagslíf í boði allan
veturinn hjá Feb Sel.
Magnús talaði um að hann færi á Hornafjörð 9. apríl og kæmi kannski
ekki heim fyrr en 10. apríl og þess vegna væri betra að hafa
stjórnarfundinn kl. 18.00 og hafa hann í Félagslundi.
Rætt um að hafa fund með frambjóðendum fyrir kosningar og
ákveðið um að athuga hvort föstudagurinn 8. maí gæti gengið.
Magnús ætlar að tala við talsfólk flokkana í dag. Rætt var um hvað
ætti að kaupa mikið magn af gosi fyrir ballið. MJM ætlar að tala við
þá sem voru með síðasta ball sem var í Vik í Mýrdal.
9. Næsti stjórnarfundur verður 10.04.´26 kl.18.00 í Félagslundi.
10. Fundi slitið kl. 11.35.
Eldri stjórnarfundir
3. stjórnarfundur
3. stjórnarfundur 28.03.25 Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (8/2025). 3 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 28.03.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari,...
2. stjórnarfundur
2. stjórnarfundur 14.03.25 Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (7/2025). 2 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 14.03.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari,...
1. stjórnarfundur
1. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (6/2025). Fyrsti stjórnarfundur Febsel föstudaginn 28.02.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar...
20. stjórnarfundur
20. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (3/2025).Tuttugasti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 14.02.2025 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún...
19. stjórnarfundur
19. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (3/2025).Nítjándi fundur stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 31.01.2025 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...
21. stjórnarfundur
21. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (6/2025).Tuttugasti og fyrsti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 13:00, fimmtudaginn 20.02.2023 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ)...
18. stjórnarfundur
18. stjórnarfundur stjórnarfundur föstudaginn 17.01.25 kl. 09:00 í Uppsölum Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (2/2025).Átjándi fundur stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 17.01.2025 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM)...
17. stjórnarfundur
17. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (1/2025).Sautjándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 03.01 2025 í Uppsölum í Grænumörk 5.Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...
16. stjórnarfundur
16. STJÓRNARFUNDUR Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (19/2024).Sextándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 13.12.2024 í Fosstúni 7. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ)...
15. stjórnarfundur
15. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (18/2024).Fimmtándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 29.11.2024 kl. 10:30 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna...
