17. stjórnarfundur
- Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (1/2025).
Sautjándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 03.01 2025 í Uppsölum í Grænumörk 5.Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Bachman (ÓB) meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn.- Fundur settur. MJM formaður setti fund kl. 10:30 og óskaði stjórnarmönnum gleðilegs árs.
- Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt samhljóða.
- Fjármál félagsins. EJ fór yfir drög að ársreikningi FebSel. Hagnaður var á rekstri félagsins sem nam um 332 þúsund kr. Nú munu allir stjórnarmenn staðfesta ársreikning félagsins með undirritun. Fram kom hjá gjaldkera að félagsgjaldið er rukkað hlutfallslega þegar fólk gengur í félagið þannig að það borgar ekki heilt ár nema að það gangi inn um áramót. Ákveðið hefur verið að taka upp Abler eftir aðalfund. Forritið Abler veitir m.a. yfirsýn yfir skráningar, félagsmenn, viðburði félagsins og fjárflæði.
- Aðalfundur FebSel febrúar. Finna þarf starfsmenn fundarins. MJM gerir tillögu um að fá Jónu S. Sigurbjartsdóttur sem fundarstjóri, hann mun tala við hana. ÓI mun tala við Margréti Jónsdóttur um að taka að sér að vera ritari og athuga með að velja annan ritara. MJM mun ræða við kjörnefnd fyrir næsta stjórnarfund. GÞ kynnti stjórnarsetu stjórnar og varastjórnar síðan 2018. Hún mun senda þá kynningu til stjórnar. Það eru þrír stjórnarmenn og einn varamaður sem lokið hafa kjörtíma sínum. Stjórn ræddi hvort þyrfti að leggja ályktun fyrir aðalfundinn, það verður íhugað fram að næsta fundi.
- Dagskrá fram að aðalfundi. Það verða fjórir stjórnarfundir, 17. jan. 7., 14. og 20. febr. Síðastnefndi verður stuttur til að undirbúa fundinn.
Opið hús verður 9. jan. Þá verður ný heimasíða FebSel kynnt og opnuð, Sigurður Júlíusson hefur unnið hana. Einnig mun Ísleifur Árni Jakopsson segja frá gömlu Ölfusárbrúnni. 16. janúar verður sagt frá handboltaköppum héðan frá Selfossi og þá er fyrsti leikur HM. Viðburðir eru skráðir í Opnu húsi út starfsárið nema að einn fimmtudagur er laus.
- Önnur mál
- Margrét Elísa Gunnarsdóttir sendi MJM bréf um að stór kynning sé fyrirhuguð fyrir starfsfólk HSU og sveitarfélagsins Árborgar í Mörk 1 þann 22. jan. Flytja þarf starfsemi FebSel eftir hádegi í sal 3, en það eru Kínaskák og æfing hjá Hörpukórnum.
- Í haust var rætt um að þýða valið efni um FebSel á ensku og pólsku. MJM sagði að það mætti hugsa sér að það kæmi inn á nýju heimasíðuna.
- Heimasíða – formaður færði fundinn í sal 3 þar sem Sigurður Júlíusson kynnti nýja heimasíðu FebSel, stjórn leist mjög vel á síðuna. Ákveðið var að kynna og opna heimasíðuna í Opnu húsi þann 9. jan. n.k.
Fundi slitið 11:54.
Næsti fundur verður 17.01 kl. 10.30 í Uppsölum í Grænumörk 5.
________________________________ ________________________________
Guðrún Þóranna Jónsdóttir Magnús J. Magnússon
ritari formað
Eldri stjórnarfundir
21. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (05/2026) 21 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 19.02.2026 kl. 12.45 í S1 Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...
20. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (04/2026) 20 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 13.02.2026 kl. 10.00 í S1 Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...
19. stjórnarfundur
Stjórn FEBSEL 2025 – 2026 --------------------------------------------------------------------------- 19. stjórnarfundur föstudaginn 06.02.26 kl. 10.30 í S1 FUNDARGERÐ Mætt: MJM, ÓI, VB, ÓS, EJ, ÓB Forföll: MJ Geymsluskoðun: Stjórn félgasins fór og skoðaði...
18. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (02/2026) 18 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 23.01.2026 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...
17. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (01/2026) stjórnarfundur Febsel föstudaginn 09.01.2026 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...
16. stjórnarfundur
Stjórn FEBSEL 2025 – 2026 --------------------------------------------------------------------------- stjórnarfundur föstudaginn 12.12.25 kl. 10.30 í Fosstúni 7 FUNDARGERÐ Mætt: MJM formaður, ÓI varaformaður, EJ gjaldkeri, MJ ritari, VB meðstjórndi, ÓS, varamaður,...
15. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (18/2025) stjórnarfundur FebSel föstudaginn 28.11.25 í S1 í Grænumörk. Mætt voru: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Valdimar Bragason (VB)...
14. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (17/2025) 14 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 14.11.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir fjarverandi (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason...
13. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (16/2025) 13 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 31.10.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri fjarverandi, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason...
12. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (15/2025) 12 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 17.10.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...
