Stjórn FEBSEL 2025 – 2026
—————————————————————————
- stjórnarfundur föstudaginn 12.12.25 kl. 10.30 í Fosstúni 7
FUNDARGERÐ
Mætt: MJM formaður, ÓI varaformaður, EJ gjaldkeri, MJ ritari, VB meðstjórndi, ÓS, varamaður, ÓB, varamaður
- Fundur settur.
Formaður setur fund og býður alla velkomna og þakkar Ólfíu fyrir heimboðið
- Fundargerð síðasta fundar lögð fram.
Fundargerð 15. fundar samþykkt.
- Starfið frá síðasta fundi.
- Aðventuhátíð gekk verulega vel og voru allir ánægðir með að hafa hana í Grænumörkinni. Veitingar Kvenfélagsins frábærar, Hörpukórinn með fallega söngva, Séra Anna Kristjánsdóttir var með jólaávarp og Ísleifur Árni jakobsson var með jólasögu. Góð mæting!
- Litlu jólin voru jólaleg. Söngatriði út tónlistarskólanum af öllu tagi, Unnur Halldórsdóttir. með gátur og Ísleifur okkar með jólasögu. Súkkulaði og smákökur frá Kvenfélaginu.
- Karlarnir í Uppsölum fara vel af stað og eru virkir. Við erfðum mikið af all skyns verkfærum sem þeir eru nú að vinna úr. Eru 3 daga í viku og gengur vel.
- Næsta ár, örstutt!
- Björn formaður LEB og Oddný framkvæmdarstjóri LEB koma 14.01.26 með kynningarfund og byrja kl. 10.00. Þarf að kanna hvort sá tími gengur!
- Opin hús byrja 15.01 og búið að skipuleggja þau til 19. mars. Kanna með kosningafund í lok apríl, byrjun maí. Byrjar á hagyrðingafundi 15.01.26!
- Sinfó 08.01.26. Kanna þátttöku á FB eingöngu. Láta vita í hópana. Rúta fer 10.30, tónleikar kl. 12.00 og komið heim 14.30. Ekki komið verð á rútu.
- Aðalfundur 19.02. Boðum uppstillingarnefnd á fund 09.01.26 til skrafs og ráðagerða. Þarf að finna 4 nýja stjórnarmeðlimi. Allir að leggjast á árarnar!
- Bragi bæjarstjóri kemur á fund stjórnar 09.01.26. Stefnt að því að undirrita nýjan samning eins fljótt og möguegt er. Hann er nánast tilbúinn. Umræður um samning og annað tengt fjármálum og námskeiðum. Elín að kanna með kostnað miðað við nýjan samning. Einnig er til fjármagn til að kaupa skjávarpa. Kanna með tekjur af húsaleigu.
- Önnur mál
- Færeyjarferð 2027. Búið að leggja drög að hugmynd um ferði í lok apríl byrjun maí. Kanna með lengd á ferðinni. Kostnaðaráætlun í lok apríl 2026
- Kanna með áhuga á að vera í Bingónefnd. Setja það á FB
- Fundi slitið.
Næsti fundur 09.01.26 kl. 10.30 í S1
___________________________________________________________
Magnús J. Magnússon formaður ritaði fundargerð.
Eldri stjórnarfundir
21. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (05/2026) 21 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 19.02.2026 kl. 12.45 í S1 Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...
20. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (04/2026) 20 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 13.02.2026 kl. 10.00 í S1 Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...
19. stjórnarfundur
Stjórn FEBSEL 2025 – 2026 --------------------------------------------------------------------------- 19. stjórnarfundur föstudaginn 06.02.26 kl. 10.30 í S1 FUNDARGERÐ Mætt: MJM, ÓI, VB, ÓS, EJ, ÓB Forföll: MJ Geymsluskoðun: Stjórn félgasins fór og skoðaði...
18. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (02/2026) 18 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 23.01.2026 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...
17. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (01/2026) stjórnarfundur Febsel föstudaginn 09.01.2026 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...
15. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (18/2025) stjórnarfundur FebSel föstudaginn 28.11.25 í S1 í Grænumörk. Mætt voru: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Valdimar Bragason (VB)...
14. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (17/2025) 14 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 14.11.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir fjarverandi (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason...
13. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (16/2025) 13 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 31.10.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri fjarverandi, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason...
12. stjórnarfundur
Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (15/2025) 12 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 17.10.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB)...
11. stjórnarfundur
11. stjórnarfundur 03.10.25 Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (14/2025) 11 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 03.10.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritarium...
