Fundargerð stjórnar eldri borgara Selfossi (16/2025)
13 stjórnarfundur Febsel föstudaginn 31.10.25 kl. 10.30 í Uppsölum Grænumörk.
Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri fjarverandi, Margrét Jónsdóttir (MJ) ritari, Valdimar Bragason (VB) meðstjórnandi Ólafía Ingólsfsdóttir (ÓI) varaformaður Ólafur Backman (ÓB) varamaður fjarverandi og Ólafur Sigurðsson varamaður.
- Fundur settur. Kl 10.30
- Fundargerð síðasta fundar lögð fram.
- Árshátíð 06.11.25 seldir vora yfir 100 miðar í gær. Sveitarfélagið er ekki búið að svara enn hvort fordrykkurinn verði gefinn af sveitarfélaginu. Dagskráin er tilbúin. Tekið er frá borð fyrir stjórnina. Húsið opnar kl 18.00 og Hörpukórinn verður með fyrsta atriði. VB talaði um hvort leikhópurinn kæmi ekki með skedsa á milli atriða td eitthvað um Felix. Spurning er hvort ætti að gera heiðursfélaga á árshátíðinni en stjórna ætlar að skoða það betur.
- Aðventuhátíð 04.12.25 ÓS sagði að verðið væri ekki komið endanlega frá kvenfélaginu en það verður kaffihlaðborð. Presturinn mætir. Talað um skreytingar hvenær verði byrjað að skreyta. Hugvekja verður frá prestinum og Hörpukórinn verður einnig. Hátíðin byrjar kl 14.00. Heiðrún lætur vita þegar hún veit hvað hún á af skrauti. MJM vill hafa skreytt jólatré í salnum. ÓS kom með hugmynd um aðra uppröðun á borðunum svo sviðið væri í miðjunni. ÓS sagði frá nýjum borðum sem eru komin í safnaðarheimili kirkjunnar öll á hjólum létt og meðfærileg. Fatamarkaðurinn verður sama dag kl 10.00 – 13.30.
- Afgreiðsla mála frá síðasta fundi. MJM spurning um næstu stjórn. Umræða um félaga sem gæfu kost á sér. Spurning hvort VB væri til í að fara í viðburðarstjórn þegar ÓS færi úr henni stjórnin telur gott að einn úr stjórn sé í viðburðarstjórn. Talað um hvað Palli var góður í opnu húsi í gær.
- Hvað er fram undan? Næst árshátíðin . Færeyingakynning næst spurning hvort það yrði frestað um viku og þeir sem átti að vera í gær komust ekki vegna veðurs. Eftir kynningu á ferð til Færeyjar, væri spurning hvort FEBSEL færi til Færeyja haustið 27 farið yrði með langferðabíl. MJM sagði frá ferðum sem hann hefur farið til Færeyja. Spurning hvort stjórn skipaði ekki ferðanefnd.
- Önnur mál MJM talaði um formannafundinn stjórn var búin að fá fundargerðina frá þeim fundi. Hringt var úr Arionbanka og spurt var hvort félagið vildi fá námskeið um fjársvikamál og fleira. Spurning hvort það ætti að vera í opnu húsi en næsti lausi fundur er í mars. Spurning hvort það gæti verið um leið og jólamarkaðurinn er 27 nóv. MJM ætlar að ath hvað fyrirlesturinn er langur. Heiðrún sagði MJM að það væri alltaf að spyrja hvort ekki ættu að vera oftar Bingó. Ekki þyrfti endilega að vera vinningar. Umræða um hversu oft ætti að vera með Bingó og hvort það ætti að vera sér nefnd um það. ÓS spurði hvort ekki ætti að afhenta formlega til Sjóðsins góða MJ spurði hvort ekki mætti gera það á aðventuhátíðinni. ÓI ræddi um nefndir hún var búin að rauðmerkja hverjir ættu að fara úr nefndum. ÓI sýndi okkur fréttabréf sem félagið í rangárþingi gefa út á haustin.
- Fundi slitið.kl 11.40
Næsti fundur 14.11 kl. 10.30
___________________________ ____________________________
Margrét Jónsdóttir ritari Magnús J. Magnússon formaður
Sigurðsson (ÓS) varamaður.
Eldri stjórnarfundir
03. stjórnarfundur
03. stjórnarfundur 5.apríl 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (6/2024).Þriðji fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 05.04.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari,...
02. stjórnarfundur
02. stjórnarfundur 22.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (5/2024).Annar fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 22.03.2024, kl. 9:00í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
01. stjórnarfundur
01. stjórnarfundur 1.mars 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (4/2024).Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 01.03.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ)...
