893 2136

febsel@febsel.is

Smella hér fyrir Facebook síðu Febsel →

03. stjórnarfundur

5.apríl 2024

Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (6/2024).
Þriðji fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 05.04.2024 í Uppsölum

í Grænumörk 5.

Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn. Ólafía Ingólfsdóttir og Elín Jónsdóttir boðuðu forföll. Ólafur Bachman var fjarverandi

  1. Fundur var settur 10:30 af formanni.
  2. Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt.
  3. Viðtal Karenar Margrétar meistaranema. MJM bauð meistaranemann velkominn og hún þakkaði fyrir að fá að koma og kynnast starfi okkar á Selfossi. Hún er meistaranemi í opinberri stjórnsýslu og fjallar meistaraprófsritgerðin hennar um aðgerðaáætlunina Gott að eldast sem er samstarfsverkefni félags- og vinnumálaráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins. Karen Margét fékk upplýsingar um stöðuna hjá Félagi eldri borgara Selfossi og taldi hún starf félagsins gott miðað við það sem hún hafði fengið upplýsingar um í öðrum landshlutum. Síðastliðið haust var ákveðið að Árborg yrði tilraunaþátttakandi í verkefninu Gott að eldast og er verið að vinna að því að undirbúa þá framkvæmd. Lögð hefur verið áhersla á að nýta verkefnið inn á is. Er meðal annars verið að vinna að því að samþætta þjónustu á milli ríkis og heilbrigðisþjónustu.
  4. Öldungaráðið í Opnu Húsi 04.04.24. Stjórnin var sammála um að það hefði verið góð umræða í opna húsinu. Ráðið fékk þó nokkrar spurningar um mat, þrif og fleira, aðgengi yfir Austurveginn, þakkir fyrir heilsueflinguna. Ákveðið hefur verið að19. apríl komi Bragi Bjarnason formaður ráðsins og Sigþrúður Birta starfsmaður ráðsins á fund með stjórn félagins.
  5. Námskeið næsta vetur. Ræða þarf við námskeiðshaldara um næsta vetur, hvað getur haldið áfram, einnig gætu ný námskeið bæst við. Einnig þarf að kanna hverjir vilja sýna verk sín af námskeiðum vetrarins á Vor í Árborg.
  6. Vor í Árborg verður 25. og 27. apríl. Félagið þarf að koma að sýningunum. Athuga þarf með einhver skemmtiatriði, Hörpukórinn, mögulega meiri tónlist, ath. hjá KS hvort þær gætu verið með vöfflukaffi báða dagana. GÞ mun kanna með Hörpukórinn og kvenfélagið.
  7. Önnur mál.
  8. a) Félag eldri borgara frá Ísafirði kemur – 7. júní í heimsókn á Suðurland. Mótttaka verður skipulögð þegar nær dregur.
  9. b) Stjórn mun undirbúa heimsókn forsvarsmanna öldungaráðs á næsta fund stjórnarinnar, Braga Bjarnasonar og Sigrúðar Birtu Jónsdóttur. M.a. má nefna að mikilvægt sé að fá húsvörð í Grænu Mörk 5.

Næsti stjórnarfundur 19.04.24 kl. 9:00 verður boðaður með dagskrá

Fundi slitið. 11:30

 ________________________________           ________________________________

        Guðrún Þóranna Jónsdóttir                        Magnús J. Magnússon

                           ritari                                                 formaður

Eldri stjórnarfundir

Bókasafnsferð

Afsakið góðir félagar. Ég fékk þá flugu í höfuðið að setja hér inn á síðuna nokkrar myndir af eldri borgurum sem eru í ýmsum öðrum hópum en á vegum félagsins okkar. Ég þekki nú ekki alla slíka hópa en ég datt inn á bókasafnið í morgun og þar er hress hópur þar sem...

15. stjórnarfundur

15. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (18/2024).Fimmtándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 29.11.2024 kl. 10:30 í Grænumörk 5.   Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna...

14. stjórnarfundur

13. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (17/2024).Fjórtándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 15.11.2024 kl. 10:30 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...

13. stjórnarfundur

13. stjórnarfundur 1.nóvember 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (16/2024). Þrettándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 01.11.2024 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...

12. stjórnarfundur

12. stjórnarfundur 18.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (15/2024).Tólfti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 10:30 föstudaginn 18.10.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

11. stjórnarfundur

11. stjórnarfundur 4.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (14/2024). Ellefti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.0.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

10. stjórnarfundur

10. stjórnarfundur 19.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (13/2024).Tíundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.09.2024 í Uppsölum í Grænumörk Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

09. stjórnarfundur

09. stjórnarfundur 6.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (12/2024).Níundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 6.09.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...

08. stjórnarfundur

08. stjórnarfundur 23.ágúst 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (11/2024).Áttundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 23.08.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...

07. stjórnarfundur

07. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (10/2024).Sjöundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 8.8.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...