01. stjórnarfundur
1.mars 2024
Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (4/2024).
Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar Feb Selfossi, haldinn föstudaginn 01.03.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5.
Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna Jónsdóttir (GÞ) ritari, Ólafur Bachman (ÓB) meðstjórnandi, Ólafur Sigurðsson (ÓS) og Valdimar Bragason (VB) varamenn. Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður boðaði forföll vegna veikinda.
- Fundur settur 10:30, Magnús formaður setti fund og bauð Elínu Jónsdóttur nýjan gjaldkera velkomna.
- Fundargerð síðasta fundar samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur FebSel 22.02.24. Fundurinn var fjölsóttur, mæting um 130 manns. Tveir skjáir voru settir upp og setið var í báðum sölum. Nokkrar umræður urðu um framkvæmd fundar en stjórn var sammála um að vel hefði gengið, fundurinn stóð í eina klukkustund og 40 mínútur.
- Tímasetningar stjórnarfunda. Ákveðið að hafa stjórnarfundi annan hvorn föstudag kl. 10:30.
- Viðburðir á starfsárinu. Félagið hefur síðastliðin ár tekið þátt í Vor í Árborg með sýningu í Mörk og viðburðum. MJM mun hafa samband við forsvarsmenn Árborgar varðandi það. Síðasta Opna húsið verður 16. maí. Gert er ráð fyrir hátíð í Mörk 17. júní. Einar Björnsson hefur séð um hátíðahöldin.
Stjórn mun funda 15. mars með nefndum félagsins og kanna stöðu þeirra.
- Önnur mál
- MJM upplýsti stjórn um að haldinn yrði fundur í dag kl. 12:30 með formönnum félaga eldri borgara á Suðurlandi (þau eru 12). Formaður LEB, Helgi Pétursson og stjórnarmaður, Þorbjörn Guðmundsson mun einnig mæta. Síðan munu þingmenn Suðurkjördæmis koma á fundinn kl. 13:30.
- ÓS keypti deili í Árvirkjanum – til að tengja milli sala í Mörk. Hann er geymdur í Uppsölum.
- Er þetta frétt? er þáttur hjá RUV. FebSel var boðið að senda fólk til að vera í sal. Ákveðið að taka ekki þátt í þessu það sem það yrði kosnaðarsamt.
- Elín ræddi um skiptin á prókúru – það mun vera sent á stjórn rafrænt að undirrita samþykki um það. Rætt um annað kerfi – sportable. Elín mun skoða það.
- Rætt um 1000. félagsmann í FebSel sem er mjög stutt í. Ákveðið var að tekið yrði á móti honum með blómum og mynd með umfjöllum í fjölmiðlum. MJM mun senda grein í Dagskrána um starfsemi félagsins nú eftir aðalfundinn.
- Bréf barst til gjaldkera frá Ollý, olly@simnet.is>. Hún spyr hvert eigi að snúa sér til að ákveða hver ræður málum einstaklings þega hann getur það ekki lengur? Það þarf að svara henni varðandi þetta erindi.
- Fram hefur komið ósk um að fá að spila bingó. EJ mun athuga verð á bingósetti.
- Frá LEB Viðar Eggertsson framkvæmdarstjóri er hættur og var Oddný Árnadóttir ráðin í hans stað.
- Næsti stjórnarfundur verður 15.03.24
- Fundi slitið kl. 11:30.
___________________________ ____________________________
Guðrún Þóranna Jónsdóttir Magnús J. Magnússon
ritari formaður
Eldri stjórnarfundir
Bókasafnsferð
Afsakið góðir félagar. Ég fékk þá flugu í höfuðið að setja hér inn á síðuna nokkrar myndir af eldri borgurum sem eru í ýmsum öðrum hópum en á vegum félagsins okkar. Ég þekki nú ekki alla slíka hópa en ég datt inn á bókasafnið í morgun og þar er hress hópur þar sem...
15. stjórnarfundur
15. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (18/2024).Fimmtándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 29.11.2024 kl. 10:30 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Elín Jónsdóttir (EJ) gjaldkeri, Guðrún Þóranna...
14. stjórnarfundur
13. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (17/2024).Fjórtándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 15.11.2024 kl. 10:30 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...
13. stjórnarfundur
13. stjórnarfundur 1.nóvember 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (16/2024). Þrettándi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 01.11.2024 í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður, Elín...
12. stjórnarfundur
12. stjórnarfundur 18.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (15/2024).Tólfti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn kl. 10:30 föstudaginn 18.10.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
11. stjórnarfundur
11. stjórnarfundur 4.október 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (14/2024). Ellefti fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.0.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
10. stjórnarfundur
10. stjórnarfundur 19.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (13/2024).Tíundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 19.09.2024 í Uppsölum í Grænumörk Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
09. stjórnarfundur
09. stjórnarfundur 6.september 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (12/2024).Níundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 6.09.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI)...
08. stjórnarfundur
08. stjórnarfundur 23.ágúst 2024 Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (11/2024).Áttundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn föstudaginn 23.08.2024 í Uppsölumí Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...
07. stjórnarfundur
07. stjórnarfundur Fundargerð stjórnar Félags eldri borgara Selfossi (10/2024).Sjöundi fundur stjórnar FEB Selfossi, haldinn fimmtudaginn 8.8.2024 í Uppsölum í Grænumörk 5. Mætt: Magnús J. Magnússon (MJM) formaður, Ólafía Ingólfsdóttir (ÓI) varaformaður,...